Æskan - 01.03.1967, Side 12
Þvermál Merkúrs er ekki meira en breidd Atlantshafsins, þar sem það er breiðast.
á því voru mjög erfiðar. Slxkt er
venjulega kannað með athugunum á
endurkasti sólarljóssins frá viðkom-
andi reikistjörnu eða tungli, en Merk-
úr liggur svo nærri sólinni, að horfa
verður næstum beint í geisla hennar.
Að vísu er hægt að athuga Merkúr
skömmu fyrir sólarupprás og rétt eft-
ir sólarlag, þegar sólin er neðan sjón-
deildarhrings en Merkúr ofan hans.
En þá er sá gallinn á, að geislar ljóss-
ins þurfa að fara skáhallt langa leið
í gegnum þykkustu loftlög jarðar, svo
að ekki eru slíkar athuganir nákvæm-
ar. Fyrir nokkrum árum heppnaðist
rússneskum stjörnufræðingi að rann-
saka Merkúr, þegar almyrkvi á sól
varð á Krímskaga (tunglið var beint
á milli sólar og jarðar og skyggði á
sólina), og honum tókst ekki að
greina neinn lofthjúp. Hann setti að
vísu fram þá kenningu síðar, að vetni
bærist til Merkúrs frá sólinni en hyrfi
þaðan nokkurn veginn jafnharðan
aftur vegna lítils aðdráttarafls hans,
en ekki heíur tekizt að staðfesta það
enn. En þótt ekki séu allir stjörnu-
fræðingar á eitt sáttir með þetta, þá
má að minnsta kosti fullyrða það, að
hafi Merkúr einhvern loftlijúp, þá er
liann ábyggilega mjög þunnur.
Það er sem sagt ekki ýkja margt,
sem vitað er með vissu um Merkúr.
Efnismassi hans er ekki meiri en svo,
að maður, sem vegur á jörðinni 75
kg, er ekki nema um 27 kg á þyngd,
þegar hann er kominn til Merkúrs.
En braut Merkúrs um sólina er all-
mikið sporbaugslöguð. Þó að við segj-
um, að meðalfjarlægð hans frá sól sé
um 58 milljónir kílómetra, er hann
ekki nema 45 millj. km frá henni,
þegar hann kemst næst henni (sól-
nánd), en kemst í 69 millj. km fjar-
lægð, þegar hann er í sólfirrð (lengst
frá sól). Þetta olli því, að sumir
stjörnufræðingar 19. aldar töldu víst,
að milli Merkúrs og sólar væri enn
ein reikistjarna, sem hefði þessi áhrif
á braut hans. Þeir gáfu henni nafnið
TEIKNIKENNSLA
Hér höldum við áfram með tölustaf-
ina og birtum nú 7, 8, 9 og 0. Úr töl-
unni 7 getið þið teiknað páfagauk,
úr 8 uglu, úr 9 kött og úr 0 fisk.
Vulcan. Síðan hóíst mikil leit að þess-
ari leyndardómsfullu íeikistjörnu. Að
minnsta kosti einn stjörnuíræðingui
fullyrti, að liann hefði séð hana, en
síðan hefur ekkert til hennar spuizt.
Merkúr íylgir því lögmáli eins og
aðrar reikistjörnui', að því nær sexn
reikistjarna liggur sólinni, þeim mun
hraðar fer liún á braut sinni. Þegar
Meikúr er í sólnánd, er brautarhraði
hans um 59 km á sekúndu en í sól-
firrð er hraðinn aðeins 38 km á sek-
Sjálfsagt eigum við eftir að auka
þekkingu okkar mikið á þessari reiki-
stjörnu á næstu árum, en vafalaust
verður þess langt að bíða, að geimför
lendi á henni, Jrví að hún verður
sennilega látin mæta afgangi. Ein af
ástæðunum til þess, hve lítið við vit-
um um Merkúr, er sú, að stjörnufræð-
ingar hafa haft miklu meiri áhuga á
Venusi og síðan ytri reikistjörnun-
um. Þaðan hefur Jreim helzt þótt
frétta að vænta, enda er að sumu
leyti auðveldara að rannsaka þær. Því
er enn ekki vitað, hvort árstíðaskipti
eru á Merkúr, né heldur með neinni
vissu hvernig yfirborð hans er eða
lofthjúpur, ef einhver er. En svo eyði-
leg er reikistjarnan og andstæðurnar
miklar milli hita og kulda, að
ógleymdum skorti á lieppilegum loft-
tegundum, að óhugsandi er talið, að
hún hafi getað fóstrað neins konar
lífverur. — L. J.
112