Æskan - 01.03.1967, Side 26
atKBKBKKKBKBKBKBKBKHKBKBKKBKBKKKHKBKBKKHKBKHKBKBKBKBKBKHKBKB*<KKBKKKBKBK8KHKHKBKKKBKKBKBKKKH*ðtf
Valentína Tereshkova.
ússneska konan Valentína Teresh-
kova er fyrsta og eina konan, sern
hefur farið í geimflaug til þessa dags.
Það var 16. júní árið 1963. Áður en
hún vann airek þetta varð hún að
ganga í gegnum miklar þrekraunir og
æfingar mánuðum saman.
Að morgni 16. júní 1963 vaknaði
Valentína snemma. Sólin var að gægj-
ast upp fyrir trjátoppana. Læknirinn,
sem gætti hennar, lét hana hvílast
góða stund áður en hún klæddist
geimferðabúningnum.
Sjálft geimfarið var glæsilegt og
glæsileiki þess dró nokkuð úr stærð
þess í hennar augum, en það var ekki
fyrr en hún stóð alveg hjá því, að
hún gerði sér Ijóst hve geysistórt það
var í raun og veru. Brottfararmerkið
var gefið. Hávaðinn hófst með lágum
drunum, líkast þrumum í fjarska.
Eldflaugin titraði, skellirnir urðu
hærri og meira glymjandi. Snöggur
kippur og eldflaugin þaut út í geim-
Valentína lýsir geimförinni þannig:
„Ég hafði þar til gerðan síma við
eyrun og allt í einu heyrði ég rödd,
sem sagði: Hvernig líður þér? Þetta
var rödd Gagaríns, fyrsta mansins,
sem fór í geimferð, en í þetta sinn
var hann niðri á jörðu. Fljótt fékk
ég þessa undursamlegu tilfinningu að
vera þyngdarlaus. Þetta gerðist án
nokkurra óþæginda. Allt í einu finnst
mér hendur og fætur verða afskaplega
léttir og þeir taka að hreyfast, án
nokkurs átaks. Og geimfarið lætur
mjúklega að stjórn, þegar stjórntæki
þess eru snert. Það var ánægjuleg til-
hugsun, að þessi heljarstóra og marg-
brotna vél skyldi hlýða minnstu snert-
ingu handa rninna. Það var ógleyman-
leg sjón að koma inn í skugga jarðar.
Ég sé það enn ljóslifandi fyrir mér og
myndin ber alla regnbogans liti. Mað-
ur flytur sig úr einum litnum í ann-
an, hægt og í sömu röð og þeir eru í
litrófinu. Fyrst koma blá strik með
miklurn ljóma fyrir augum. Svo breyt-
ast þau í sterkan, rauðgulan lit, síðan
í grænt með ofurlitlu gulleitu í. Næst
verður himinninn svartur, og maður
fer að sjá stjörnurnar, sem virðast al-
veg eins og þær sjást frá jörðu. Þær
eru svo langt frá okkar reikistjörnu,
að stærðin breytist ekkert þótt horft
sé á þær svona langt úti í geimnum."
í þessari geimferð fór Valentína 48
hringi umhverfis jörðu, alls um 2
milljón km og var á lofti í 71 klukku-
stund, allan þann tíma var hún í stöð-
ugu loftskeytasambandi við jörð. Á
þessari ferð sinni sá hún sólina rísa
16 sinnurn á dag.
Valentí
Eina konan
í
um það kom, orðið henni ógleynt3”
leg. Hún sá móður sína gráta og syst
ur sína skríða út í horn á stofun1”
þeirra. Hún var svo ung, að h11'1
skildi ekki hvað hafði gerzt, en sffl
ád
og smátt rann það upp fyrir hen”1’
að pabbi hennar myndi aldrei kon1*1
aftur úr þessu voðalega stríði.
Barnæska Valentínu var fátækleg
og þrungin grimmum örlögum. Hún
var tveggja ára er heimsstyrjöldin síð-
ari hófst árið 1939, og þá var faðir
hennar kallaður í herinn eins og flest-
ir aðrir karlmenn í litla þorpinu, þar
sem hún fæddist og ólst upp í Mið-
Rússlandi. Valentína var aðeins rúm-
lega þriggja ára gömul, jsegar faðir
hennar féll í styrjöldinni. Þó hefur
minningin um daginn, sem fregnin
Valentína Tereshkova, maður hennur’
iKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKKHKHKHKHKHKHKHKK
^^„JHKHKHKHKHKHKKH^