Æskan - 01.01.1968, Page 12
Ef nýr snjór hefur fallið að nótt-
inni getur maður næsta morgun „les-
ið“ á hann eins og bók, ef einhver
dýr hafa gengið um.
I einni af bókum Baden-Powells,
upphafsmanns skátahreyfingarinnar,
er saga sem snjórinn sagði.
Það voru ofurlítil fuglaspor í snjón-
um. Snjótittlingur hefur verið þar á
gangi. Sporin eru tvö og tvö samhliða,
því að snjótittlingurinn hoppar jafn-
fætis. Við rekjum slóðina — sjáum
til: Þarna liefur snjótittlingurinn litli
verið að glíma við brauðskorpu. Far-
Þegar snjórinn segir frá.
Hvað skyldi hann hafa orðið
liræddur við? Jú, þarna eru önnur
spor skammt frá. Hver hefur gengið
svona nett og varlega, að afturlöppin
lendir alltaf í farinu eftir framlöpp-
ina, svo aðeins eru tvö spor í stað
fjögurra? Það getur enginn annar ver-
ið en kötturinn. Og við sjáum meira
að segja að hann hefur verið á veið-
um, því að bilið milli sporanna stytt-
ist eftir því sem hann færist nær snjó-
tittlingnum, sem var að kroppa
brauðskorpuna.
En svo hefur meira gerzt. Köttur-
inn hefur tekið undir sig stökk —
maður sér það á því, hve förin eftir
afturlappirnar eru djúp í snjónum.
Og kisa hefur beygt til vinstri og flú-
ið á harðaspretti.
Það er hundurinn, sem hefur rekið
Hérna sjáið Jrið mynd af sporum ið í snjónum sýnir að þetta hefur hana á burt. Það er auðséð, að liann
ýmissa dýra. verið stór skorpa. tlann hefur farið hefur hlaupið, Jrví að hann hefur
1. Hjörtur (7 cm) með hana með sér, því að hann hef- ausið snjó aftur fyrir sig úr hverju
2. Tófa (5 cm) ur ekki getað torgað henni allri. spori.
3. Köttur (3l/2 cm) Svo finnum við skorpuna dálítið Svona er hægt að lesa ýmislegt úr
4. Rotta (7 cm) lengra undan, og þar sem hún ligg- snjónum. Þið skuluð einhvern tima
5. Héri (5-15 cm) ur hverfa sporin. Snjótittlingurinn reyna Jrað sjálf, og sjá hvernig Jrað
6. Spörfugl (2/2 cm) hefur flogið út í buskann. gengur.
stæðri átt og hvolfdi bátnum. Hvíti
Örn varð bæði skelkaður og undr-
andi, en þó varð honum fyrst fyrir
að hugsa um Björtu Stjörnu. Hann
lieyrði hana busla og súpa hveljur
og sá þá, hvar liún barðist um í yfir-
borði vatnsins rétt hjá honum, tók
í handlegg henni og dró hana að
bátnum, sem maraði á hvolfi rétt hjá
þeim. Þá náðu þau taki yfir kjölinn
og héngu Jrannig stutta stund, þótt
þeim fyndist það óratími vegna roks-
ins, regnsins og kuldans í vatninu.
Hvíti Örn var farinn að skjálfa.
Þá lægði storminn jafnskyndilega
og hann hafði skollið á. Hvíti Örn
gerði tilraun til að koma bátnum
á réttan kjöl, en það reyndist árang-
urslaust, því hann varð að halda stúlk-
unni á floti á meðan. En rétt um leið
og hann var að gefa upp alla von
um að ná landi, var hann gripinn
föstu taki. Þá fann Elvíti Örn, að
hann var að missa meðvitund og að
allt varð dimmt.
Þegar hann kom til sjálfs sín aftur.
lá hann í rúmi sínu inni í sínu eigin
tjaldi. Móðir hans kraup hjá honum
og hélt á bolla með heitu kjötseyði.
Hann saup gætilega á því, en sagði
síðan:
„Móðir mín. Hvað um Björtu
Stjörnu?“
„Hún bjargaðist einnig,“ sagði móð-
ir hans. „Þú hefur verið hraustur pill-
ur í dag. Menn óttuðust, að þið hefð-
uð farizt í ltvirfilbylnum, svo að feður
ykkar lögðu af stað að leita í bátum
sínum og náðu til ykkar rétt í þann
mund, er þú varst að missa takið á
bátnum. Já, þið reyndust bæði harð-
feng í háskanum og feður ykkar eru
hreyknir af ykkur, ekki sízt faðir
Júnn. Þú bjargaðir lífi Björtu Stjömu
og hún reyndist hugrökk eins og Jjú.“
Sig. K. þýddi úr ensku.
0«0#0«0»0»0«0*0»e>«'-i*0«0*0*0«0»n«0«000«000«0«0«000*000*0<
| Jftskan ii
8
1
Árgangur ÆSKUNNAR áriÖ 1968
kostar kr. 200,00. Gjalddagi blaös-
ins er í. apríl næstkomandi. —
Borgið blaðið sem fyrst, því þá
hjálpið þið til að gera hlaðiö
enn stærra og fjölbreyttara en
nokkru sinni áður.
Allir kaupendur ÆSKUNNAR
njóta hins sérstaka tækifæris-
verðs á öiium bókum blaðsins.
Verðmunur frá bóksöluverði á
hverri bók er um 30%.
iOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOI
8