Æskan - 01.01.1968, Síða 13
etta er saga um lóðs, sem bjargaði
þúsundum mannslífa og milljóna-
verðmætum. Hann kunni hvorki að
lesa né skrifa og krafðist engra launa
fyrir starf sitt — enda vissi hann ekki
hvað peningar voru. Hann var kennd-
ur við athafnasvæði sitt og kallaður
Pelrous Jack.
Settu Jrig í lians spor, lesandi góður.
Ef þú værir frábær siglingafræðingur,
myndir Jjú þá leiðbeina skipum á
hættusvæði á hafinu í fjörutíu ár, án
J>ess að fá nein laun fyrir?
Það gerði Pelrous Jack.
Værir Jjú einn mesti sundgarpur
veraldar, myndir þú Jrá hverfa aftur til
starfa eftir að hafa fengið byssuskot í
bakið að launum, fyrir unnið starf?
Það gerði Pelrous Jack.
Þú munt skilja af Jiessu, að Jack
var bæði siglingafræðingur og sund-
kappi mikilí. Dyggur og trúr vann
hann ótilkvaddur Jrað erfiða starf að
leiðbeina skipurn á hættulegri leið í
samfleytt fjörutíu ár, hvernig sem
viðraði, án þess að nokkurt óhapp
henti skip eða áhöfn. Honum voru
aldrei boðin laun enda bjóst liann
aldrei við Jreim.
Einkennilegur náungi, ekki satt?
Pelrous Jack var enginn venjulegur
náungi. Hann var nefnilega höfr-
ungur.
Út af strönd Nýja-Sjálands er sund,
sem liggur mili D’Urvilleeyjanna. Það
nefnist French Pass. Það nær frá Pel-
rous til Tasman flóa. French Pass er
ákaflega hættuleg leið. Þar eru sterk-
ir straumar og grynningar víða. Sund-
ið hafði á sér slæmt orð meðal sæfara,
þar til Pelrous Jack kom til sögunn-
ar. Næstu fjörutíu ár varð það ekki
nema einu skipi að grandi og allt var
Jiað að [jakka þessum dæmalausa höfr-
ungi.
Það var árið 1871, að fyrsta skipið
komst í kynni við Jack. Það var
skonnortan Briddle, er var á leið frá
Boston til Sidney. Skipið skreið var-
lega í gegnum French Pass. Þann dag
var bæði hvasst og dimmt yfir. Áhöfn-
in tók eftir óvenjustórum höfrungi,
sem hélt sig stöðugt fyrir framan skip-
ið og bylti sér í sjónum eins og í glöð-
um leik. Einhverjum af áhöfninni
datt í hug, að gaman væri að skutla
Jrennan stóra liöfrung, en kona skip-
stjórans kom í veg fyrir Jrað. Þrátt
fyrir dimmviðri og storm komst
skonnortan klakklaust gegnum sund-
ið með því að elta höfrunginn.
Eftir Jdví sem næst verður koniizt,
var Jretta uppliafið að hinum einstæða
starfsferli Jacks. Héðan í fráhélthann
sig í námunda við sundið og sóttist
eftir að leiðbeina skipum í „ gegnum
Jjað. Honum var fljótlega gefið nafn-
ið sitt og frægð hans barst víða, Jrví
að æ fleiri sjómenn Jrökkuðu honum
velheppnaðar ferðir sínar um Jretta
hættusvæði.
í fjörutíu ár kom Jack fagnandi á
móti skipiun, sem leið áttu um French
Pass. Hann lék sér í kringum skipin
eins og kátur hvolpur og sjómennirn-
ir kölluðu til hans örvandi húrra-
hróp. Þeir vissu að öllu var óhætt, ef
Jack var með í förinni. Þegar að surid-
inu kom hætti hann að leika sér, synti
á undan skipinu og sveigði framhjá
öllum hættum.
Árið 1903 skaut drukkinn farþegi á
skipinu Penguin á Jack úr pístólu
sinni. Sjómennirnir urðu æfir af reiði
og ætluðu að henda manninum fyrir
borð. Skipstjórinn varð að læsa mann-
inn inni til að koma i veg fyrir að
Jjeir framkvæmdu hótun sína.
í tvær vikur sást Jack ekki og var
haldið að hann væri dauður, en svo
einn góðan veðurdag birtist hann á
ný og tók til við sína fyrri iðju. Þing-
ið í Wellington setti lög, Jrar sem á
var kveðið um Jmnga refsingu hverj-
um þeim, sem gerðu Jack hinn
minnsta skaða. Þetta voru lög, sem
sjómennirnir hlýddu með glöðu geði.
Eftir að farjreginn á Penguin skaut á
Jack, kom hann aldrei framar til móts
við Jrað skip, og var það eina skipið,
sem hann fylgdi ekki í gegnum sund-
ið. Þetta fréttist fljótlega og gekk erf-
iðlega að manna skipið. Það orð lagð-
ist á, að Penguin væri óhappafleyta.
Þau urðu endalok Penguin, að Jrað
fórst þarna í sundinu með manni og
mús.
Jack var mjög ástundunarsamur í
starfi sínu, en hann var orðinn gam-
all. Síðan hann fylgdi fyrsta skipinu
hafði hann án efa bjargað Jrúsundum
mannslífa — enda var hann nú orð-
inn heimsfrægur. Jafnt nætur sem
daga var hann reiðubúinn og ávallt
óskeikull. En í apríl 1912 sást hann
síðast. Það er sennilegt að elli, eða
þá eðlilegir óvinir hans, hafi orðið
honum að aldurtila. Því miður hafði
Jack láðst að kenna öðrum höfrungi
starf sitt og enginn liefur komið í
hans stað.
Á strönd Wellingtons stendur nú
minnismerki um Jrennan merkilega
höfrung. Það reistu Jrakklátir sjó-
menn, farjregar og skipaeigendur,
sem nutu góðs af tryggð hans og viti.
Á minnisvarðann er letruð sagan um
hið frábæra starf Pelrous Jacks.
Frank Edioards —
Hulinn heimur.