Æskan - 01.01.1968, Síða 21
FRÁ DÝRARÍKINU
•o*o*o*o#o*o*o*o#o*o#o*o*o*o*o*o*o*o*o*o*o*o#o*o«o«o*o#c
5«0*0*0*0*0*0*0*0*0*0»0»0*0*0»0*0«0«0*0«0«0*0»0«0«0*0»0«
S2
KETTIR
S2
i
*•
Það ciu til j’'iniss konar
kettir — húskettir, skipskettir,
urðarkettir, heilagir kettir,
húðarkettir, hafnarkettir og -—
járnbrautarkettir. í Bandarikj-
unum sjást nær alls staðar
kettir á járnbrautarstöðvunum.
Tveir þeir frægustu lieita Tom
og Jerry, og „störfuöu" í
Baltimore og Ohio. Jerry iifði
á rottum og það var auðséð á
honum. Hann hélt sig iengstum
í koksbingjunum, en ]iar var
mikið af rottum. Forstjóri
járnbrautarinnar gat ekki þol-
að óhreina ketti, og skipaði
því varðmanni að baða Jerry
einu sinni i viku. I>etta fannst
Jerry illa til fallið, og lét svo
illa í baðinu að vörðurinn varð
að taka til sinna ráða. Hann
lét klæðskera sauma samfest-
ing handa Jerry, og upp frá
þeim degi gekk Jerry liróðug-
ur um með sperrta rófuna.
Tom var finni. Hann beið dag-
lega eftir lúxuslestinni frá
New York. Þegar liún kom
labbaði hann fram stéttina og
settist við dyrnar á matarvagn-
inum. Brytinn kom strax með
mat handa lionum. Það kom
aldrei fyrir að Tom æti mat
annars staðar.
Sum járnhrautarfélög borga
köttum sínum kaup. Það er um
20 dollarar á ári og eru borguð
í mjólk. Og kettirnir verða að
horga með auknum dugnaði í
rottu- og músaveiðum.
»S88288888888S8SSS888SSSSSSS88SSSS28SSSS28£SSSSSSSSSSÍ
Krumma gamla þekkja flestir. Hann er staðfugl og fellur þvi oft í harðindum. Hann
kann þó fugla bezt að bjarga sér, þvi hann er alæta. Hrafninn verður kynþroska
þegar hann er tveggja vetra. Hjónin halda tryggð hvort við annað ævilangt. FJölskyld-
urnar lialda liópinn langt fram á vetur og sundrast stundum ekki fyrr en líður að næsta
varptima. Hann verpir oftast um sumarmál og á að jafnaði 5 egg. Hrafninn liggur á
eggjum liátt á fjórðu viku (21—24 daga). Ungarnir eru skemmst 6—7 vikur í hreiðrinu,
og verða foreldrarnir að fæða þá á meðan og oft lengur. Hreiðrin eru stórar dyngjur
(laupar) úr ýmis háttar rusli, þangi, hrisi o. fl., en mýkra er undir eggjunum, til dæmis
gras eða mosi eða annað, sem nærtækt liefur verið. Hann verpir oftast á klettasyllum
í gljúfrabörmum, sjávarliömrum eða á hraunnybbum og borgum. Sjaldan er hann mjög
langt frá sjó, því að þar er að jafnaði verra til fanga. Hann er glysgjarn og ber ýmsa
annarlega hluti í lireiðrin af þeim sökum.
Hrafninn er bráðskynsamur fugl, auðtaminn, en þjófgefinn, stríðinn og óþekkur oft
og tíðum. Hann er liin mesta hermikráka og hefur hljóð eftir hverju kvilcindi, sem i
nágrenni við liann er, jarmar, geltir, mjálmar o. s. frv. Hrafninn er talinn langlifur,
en hér nær hann sjaldan liáum aldri vegna ófriðar af manna völdum.
Einkenni: Stór, alsvartur, með stinnar liár- eða burstakenndar fjaðrir ofan á nef-
inu, sem liylja nasaholurnar. Flýgur vel og leikur ýmsar listir á flugi, einkum á vorin
og fram eftir sumri. Röddin hreytileg: krunk, klong o. s. frv.
Heimkynni: Hrafnar eiga heima í flestum löndum, þó eru þeir ekki til á Nýja Sjá-
Iandi eða á Kyrrahafseyjunum víðast hvar. Þeir eru lieldur ekki til á Madagaskar, í
Suður-Ameríku eða Antillueyjum liinum minni.
Bláhrafn. Erlendur liaust- og vetrargestur hér á landi, einkum sunnanlands. Hann
er svipaður islenzka hrafninum á vöxt og lit, en mun minni og öllu grannvaxnari. Það
cru sérkenni á þessum hrafni, að liann sýnist oft vera livitblesóttur við nefrótina, sem
stafar af ]>vi, að fiðurburstirnar, sem hylja nasaholurnar, falla af, þegar bláhrafninn
er veturgamall eða eldri og sér í bera húðina fyrir ofan nefið. Bláhrafninn er minni
alæta en islenzki hrafninn. Skordýr, ormar og ýmiss konar önnur smádýr eru aðalfæða
lians, og er hann víða talinn fremur vera nytjafugl en liitt. Þó bregður honum allmjög
til sinnar ættar, ef hart gerist i ári. Hann ilendist hér aldrei.
Kráka er einnig nefnd Færeyjalirafn og kemur hingað oft eins og bláhrafninn og
á sömu tímum árs. Krákan er auðþekkt frá öðrum liröfnum á þvi, að liún er gráskjótt
á litinn. Höfuðið, hálsinn ljósgrár, og eru litamörkin allglögg og áherandi. Krákan er
minni en íslenzki hrafninn, en stærri en bláhrafninn.
? HVER ÞEKKIR FUGLANA?