Æskan - 01.01.1968, Síða 52
Hvað finnst þér?
Maður er frjálsmannlegri í
hreinni skyrtu en óhreinni.
Fötin halda sér betur, ef ]>au
eru hengd á herðatré.
Skóx', sem vel eru hirtir, end-
ast lengur og eru alltaf snyrti-
legir.
Steypibað á hverjum morgni
eða þvottur úr köldu vatni tek-
ui' eklii nema tíu minútur.
£ ÉG hef
ekki hugsað
út í þetta.
Það er ekki langrar stundar
verk á kvöldin að þvo sér og
bursta tennurnar.
Fólkið i kringum mig finn-
ur meii-a til svitalyktar af mér
en ég sjálfur.
Við sofum betur, ef glugginn
er opinn, og skulum við því
heldur hafa meira ofan á okk-
ur, svo að hann þurfi ekki að
vera lokaður.
HVERS VEGNA verður mað-
ur stundum ergilegur út af
engu eða einhverju lítilræði?
HVERS VEGNA er misjafn-
lega erfitt að fylgjast með i
skólanum ?
HVERS VEGNA er erfitt að
tala um suma hluti við pabba
og mömmu?
HVERS VEGNA er oft svo
erfitt að koma upp orði, þegar
maður er einn með stelpu, sem
manni lizt vel á?
HVERS VEGNA, hvers vegna,
ixvers vegna?
Það er ekki ævinlega auðveit
að vera ungur. En skárra er þó
að vita, að margir í kunningja-
hópnum eiga i saxna basli. Þ:xð
væri líkiega ekki fjarri lagi að
kynnast sjálfum sér betur?
Um daginn mætti ég strák á
mínum aldri í þvældum fötum,
með sígarettustubb í munnvik-
inu og hendurnar í vösunum.
Mér var svo sem alveg sama,
en Jxegar liann gekk fram hjá
stelpum, sem stóðu þarna,
iieyrði ég að ein þeirra sagði:
„Sjáið þið útganginn á honum
þessum!“
Ég fór að hugsa um þetta.
Skiptir það nokkru máli,
hvernig maður klæðir sig og
hvernig maður lítur út? Ég
Jxaut heim og leit i spegilinn.
Það var ijótt að sjá! Fötin mín
voru ópressuð, skórnir óburst-
aðir og sorgarrendur undir
nöglunum. Það veitti ekki af
að taka til liöndunum !
Ertu sammála?
Happdrætti S.Í.B.S. verður í ár með sama sniði og í fyrra með einni veigamikilli undantekningu:
Nú gefum við viðskiptavinum happdrættisins kost á stórglæsilegum aukavinningi:
CH EVROLET-CAIVI ARA-sportbif reið að verðmæti ca. 450—500 þúsund krónur.
Þessi gtæsilega bifreið verður dregin út í maí. Að öðru leyti verður vinningaskráin þannig:
1 vinningur kr. 1.000.000,00 kr. 1.000.000,00
1 vinningur kr. 500.000,00 kr. 500.000,00
1 vinningur kr. 200.000,00 kr. 200.000,00
10 vinningar kr. 250.000,00 . kr. 2.500.000,00
13 vinningar kr. 100.000,00 kr. 1.300.000,00
478 vinningar kr. 10.000,00 kr. 4.780.000,00
1000 vinningar kr. 5.000,00 kr. 5.000.000,00
14776 vinningar kr. 1.500,00 kr 22.164.000,00
16280 vinningar kr. 37.444.000,00
16280 vinningar.
IVIeira en fjórði hver miði
vinnur árlega að meóaltali.
Verð miðans er óbreytt,
kr. 80.00, ársmiói kr. 960,00.
Skattfrjálsir vinningar.
48