Æskan

Árgangur

Æskan - 01.02.1968, Blaðsíða 51

Æskan - 01.02.1968, Blaðsíða 51
i>iiivnriiiifMiiftiiiiiiiiaiia"«-'*->*"i.<iM>iiiiiaiiaiiaiiaiiaiiaiiaiiaiii,iaiiaiiiaMiiiiMai>a<>(iiiiifiigMtiiiiiiiitiiaiiiiiiii(il|MfiiariliiiiiaiiaiiaiiiitaiiaiiatiaiiaiiaiiaiiiiiaiiaiiaiiaiiaiiiiiaiiiiiaiiaiiaiiaiiiiJiiiaiiiiiiiiaiiaiiiiiiiian ^ y ^ ^ ^ -g- n ^ Teiknimgar: J. R. Niissen. — Texti: Johannes Farestveit. U J> JL JL» JL/ -H—/ jL JL ••MiMaiotoaMtiiaitiuaaM^iestesifigMaeoHitooaitaaeaiaaitHaiM 1. Við skildum við Bjössa síðast, þegar liann var að skriða inn í tófugrenið. „Það liefði verið l)etra, að Þrándurhefði l'arið þarna inn,“ hugsar Bjössi þar sem hann er að troða sér inn þröng göngin og nær varla andanum, þvi refaþefur- inn er ekki beinlínis ]>ægilegur. — 2. „Sérðu nokkuð?“ kallar Þrándur til lians. „Ekki annað en grjót,“ stynur Bjössi, „og mi er ég orðinn fastur og kemst ekki lengra. Þú verður að draga mig út.“ Það er lieppilegt, að Þrándur getur náð taki um fætur Bjössa, því nú stynur Bjössi: „Hjálp! Iig er alveg að kafna.“ — Þetta ætlar að verða erfitt þvi Bjössi er bæði feitur og þungur. Þrándur kallar: „Andaðu vel frá þér og dragðu inn rnagann, annars kem ég þér ekki út.“ Þetta hjálpar. Bjössi losn- ar, en það er elrki sjón að sjá hann, rauðan og þrútinn af áreynslunni. — 4. Þeir setjast nú og kasta mæðinni úti fyrir grenisholunni. „Þú ert alltof feitur i svona lagað. Þetta eru svo mjó göng,“ segir Þrándur. „En nú fer ég inn. Ég hugsa, að það gangi betur,“ hlær Þránd- ur, „þvi ég cr varla nema helmingurinn af þér.“ „Jæja,“ segir Bjössi. „Ég híð liér á meðan. En reyndu að vera fljótur, þvi ekki kemst ég inn til að hjálpa þér, el' eitthvað kemur fyrir.“ — 5. Bjössi horfir á eftir vini sínum, sem skriður inn göngin og brátt er liaun liorfinn. Bjössi er hálf hræddur við allt þetta fyrir- tæki og liugsar með sér: „Ef nú Þrándur villtist, — þvi þarna hljóta að vera rangalar og ]>eir kannski i allar áttir, kannski alveg inn i fjall, — og hann rataði aldrei út aftur.“ —- 6. Það liður nokkuð löng stund, en ekki bólar á Þrándi. Bjössi liggur við grenið og nú byrjar hann að kalla: „Þrándur, ertu þarna? Hvað er orðið af þér? Heyrirðu ekki til min?“ En liann fær ekkert svar. Bjössi er orðinn alvarlega lirædd- ur. „Kannski aumingja Þrándur hafi dottið ofan í einhverja sprungu þarna inni i urðinni og ég get ekkert gert þar sem ég kemst ekki inn,“ stynur Bjössi, en ])á heyrir hann allt í einu eins og þrusk og siðan köll, sem virð- ast koma langt innan úr urðinni, og það liýrnar yfir Bjössa. NANCY SINATRA NANCY SINATRA er fædd i Jersey City í Bandaríkjunum 8. júní 1941. í nokkur ár stóS Nancy Sinatra i skugga hins fræga föður síns. Hún söng víða í Bandaríkjunum um ást og rómantík, en á þeim tima stóð faðir hennar miklu framar henni. En dag nokkurn varð Nancy leið á þessu öllu sam- an. Hún skildi við eiginmann sinn, söngvar- ann Tommy Sands, og lagði út á frægðar- brautina með einbeittum hug. Hún söng inn á eina hljómplötu. Þetta bar árangur og Nancy varð heimsfræg og átrúnaðargoð táninganna á nokkrum mánuðum. Á milli hinna tíðu söngferðalaga um heim allan, býr Nancy í villu í Beverley Hills í Hollywood. Hún á Mustang sportbíl og skellinöðru, sem hún ferðast á til skiptis. Hana dreymir, eins og allar ungar stúlkur, um að finna sér góð- an eiginmann og eignast gott heimili. — Heimilisfang: 700 Nimes Road, Bel Air, California, U.S.A.

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.