Æskan - 01.04.1972, Side 23
flakki milli helztu borganna í landinu. „Og nú ætlar hún
alla leiS til Bala Hala um næstu helgi," sagði hann.
»Hvað þá?“ sagði Pési. „Bala Hala? Ég er á leiðinni
Þangað!"
i.Gott og vel,“ sagði ungi maðurinn. „Ég skal geta þér
llngvélina. Þá kemst konan mín ekki að heiman!" Hann
9af Pésa líka hlý föt, og brátt var hann lagður af stað
tn Bala Hala.
Hann rak upp fagnaðaróp á fiuginu. Hann flaug yfir ár,
Íve9i, járnbrautir, kirkjur, skurði, vötn, firði, akra og skóga.
Blugvélin þaut áfram. Stundum vissi Pési ferðalangur
varla, hvor endinná honum sneri upp. Allt í einu var hann
farinn að fljúga svo lágt, að nærri lá, að hann tæki reykháf-
ana af einu húsinu. En nú fann hann svo Indæla lykt af
lambakjöti og eggjum, að hann varð glorhungraður. Þess
Ve9na lenti hann í garðinum við húsið.
Hann var svo svangur, að hann fór inn án þess að þurrka
af fótunum á sér.
8.
þarna inni var maður, kolsvartur í framan. Hamingjan
9óða! Innbrotsþjófur. Þjófurinn sneri sér að Pésa. Pési,
sem vissi lengra en nef hans náði, sá, að karlinn var með
l^rmannabyssu.
nGóði, miðaðu ekki byssunni á mig,“ sagði Pési.
„Byssu?“ sagði innbrotsþjófurinn. „Ég er ekki með
neina byssu.“
„Ertu ekki innbrotsþjófur?" spurði Pési.
„Ég held nú siður, lagsi,“ sagði maðurinn. „Ég er járn-
smiður!"
Pési sagði þá járnsmiðnum, sem hét Alfreð, að hann
hefði skemmt flugvélina sína í lendingunni. Alfreð sagðist
skyldi reyna að gera við hana.
„En heyrðu," sagði Pési ferðalangur. „Veiztu hvaðan
þessi lykt kemur af lambakjöti og eggjum?“
„Ég held nú það,“ sagði smiðurinn. „Hann Raggi sonur
minn er að elda miðdegismatinn. Við ætluðum að fara að
borða, þegar þú komst. Raggi! Raggi! Þarna kemur hann!“
Þeir buðu Pésa að borða með sér, og að því loknu fór
Raggi að leika á munnhörpuna sína. Þá sótti Pési har-
monikuna og Alfreð járnsmiður barði bumbuna. Þeir léku
og sungu langa stund og drukku kaffi þess á milli.
Svo fóru þeir að gera við vélina hans Pésa. Það gekk
vel, því að Alfreð átti öll verkfæri, sem þeir þurftu að nota.
Þegar flugvélin var komin í lag, sagðist Pési þurfa að
halda áfram til Bala Hala. Alfreð gaf honum dýrindis
kræsingar áður en hann fór af stað.
Pési klifraði nú upp [ og setti í gang. Brátt tókst vélin
21