Æskan

Árgangur

Æskan - 01.04.1972, Blaðsíða 34

Æskan - 01.04.1972, Blaðsíða 34
Faraday gerir tilraunir meS rafmagn. Árið 1821 smíðaði Faraday fyrsta rafhreyfilinn. Það var mjög einfaldur hreyfili og svo afllítill, að hann var ekki nothæfur til vinnu, en þó var þetta stórkostleg uppfinning, sem siðar meir var endurbætt og fullkomnuð og er nú fyrirmynd allra hugsan- legra rafhreyfla nútímans. Vísindamenn tóku að veita starfi Fara- days athygli og hann varð víðkunnur. Árið 1824 var honum veitt prófessorsnafnbót við konunglegu brezku rannsóknastofnunina I Lundúnum. Árið 1831 sneri Faraday við þelrri smíðisaðferð, sem hann hafði notað við fyrsta hreyfilinn. Þá hafði hann notað raf- magn til þess að framleiða hreyfingu, nú notaði hann hreyfingu til þess að framleiða rafmagn. Þessa nýju uppgötvun gerði hann við tilraunir slnar með segla, járnstykki, sem hafa þann eiginleika að draga að sér ákveðnar tegundir annarra málma. Seglar geta verið úr stáii, járni, kóbalt eða tini. Segull Faradays var úr járni. Orka seguls er ósýnileg, en streymir út I nærliggjandi umhverfi, sem er nefnt segulsvið eða orkusvið. Faraday uppgötvaði, að hann gat framleitt rafmagn með þvl að draga koparstykki gegnum segulsvið. Með þessari uppgötvun varð honum mögulegt að framleiða stöðugan rafstraum. Hann þurfti aðeins að láta koparstykki snúast stöðugt með miklum hraða gegnum segulsvlð. Fyrsti rafallinn, sem Faraday smíðaði, var koparskífa, sem hengd var milli endanna á skeifulöguðum segli. Skífunnl var snúið með handsveif. Þegar hún snerist í segulsviðlnu, framleiddi hún rafmagn, sem leitt var gegnum bogadregna „bursta" út i koparleiðslur (sjá mynd). Michael Faraday starfaði að tilraunum á ýmsum öðrum sviðum og gerði margar þýðingarmiklar uppgötvanir. En nafn hans er umfram allt annað tengt uppgötvun rafmagnsins sem orkugjafa og uppgötvun rafalsins til framleiðslu rafmagnsstraums. Meðan Faraday var ungur, starfaði hann í bókaverzlun. Þá las hann allar þær vísindabækur, sem hann komst yfir. A ^vernig væri umhorfs hjá okkur I dag, ef við hefðum JKSsbÆ ekki rafmagn? Við þurfum ekki annað en virða fyrir \/ okkur heimilin til þess að fá staðfestingu á þvi, hve almennt gildi það hefur: rafmagnsljósið, útvarpstækin, kæliskáparnir, þvottavélarnar, og þannig mætti lengi telja þá hluti, sem létta okkur ómetanlega tilveruna. Tilvera allra þessara tækja byggist á uppgötvun Michaels Faradays, brautryðjanda raf- magnsins. Hann er að vísu ekki sá fyrsti, sem uppgötvaði rafmagnið — Forn-Grikkir vissu, að ef „eiektron" (rafursteini) var slegið við harðara efni, spruttu frá honum dularfullir brakandi neistar (þaðan er dregið nafnið rafmagn), en þeir veittu þessu engan vísindalegan áhuga. Árið 1752 gerði ameríski uppfinningamaðurinn og stjórnmála- maðurinn Benjamin Franklin hina frægu tilraun slna með flug- drekann og sannaði þar með, að eldingar væru rafmagnsútiausn. Árið 1800 fann ítalskur uppfinningamaður, Volta að nafni, upp rafgeymi, sem gat gefið frá sér stöðugan rafstraum. En það var Faraday, sem varð fyrstur tll þess að gera rafmagn nothæft, svo að segja tamdi það til starfa. Michael Faraday var járnsmiðssonur. Faðir hans var fátækur, svo ekki var mögulegt að koma drengnum I æðri skóla. Þrettán éra að aldri fékk hann aðstoðarstarf i bókaverzlun, og þar fór hann að Iesa allar vísindabækur, sem hann gat komizt yfir. Þegar hann var tuttugu og eins árs að aldri, hlustaði hann á marga fyrirlestra hjá sir Humphrey Davy, sem var frægur efna- fræðingur. Hann skrlfaði hjá sér ýmsar athugasemdir, vann sam- vizkusamlega úr þeim og sendi þær svo til sir Humphreys. Efnafræðingnum féll svo vel I geð nákvæmni þessara athuga- semda og snyrtilegur frágangur, að hann bauð unga manninum aðstoðarmannsstarf I rannsóknastofu sinni. Fyrst I stað voru Faraday falin minniháttar störf, svo sem að Miciael Faríday (17911867) hreinsa glös og halda ö,lu „i' Qafst h.ann haíðl augu og eyru opin fyrir öllu, og þegar vjí!3rsta^|e ®kifaeri, gerði hann til- raunir á eigin spýtur. pa gí ''Unny rafrnagnið, sem vakti áhuga hans. Það var sé^ka n',a_® rafmagnsstraumur, sem hleypt var I gegh1^,/ raarnur a ,ör>du, aðskildi hana. Þannig gat rafmagnaður (|1|J rafstrauSUndur9re,nzt I loftteg- undirnar súrefni og vatflS.at Z'® hreintm'. Var h,eypt ' gegnum silfurnítratblöndu, aðskil |S^S, 'aracla^ úr henni. Þessi efna- greining var nefnd e,ektr° „tfi' 6ssa ^ ðerði margar slíkar til- raunir. Hann samdi re®IUva||l ^kvagnijna9re,ningu: magn hins uppleysta efnis stendur ^ ^ sr kHutfalli við magn raf- straumsins, sem notaður enning nefnd Faraday- regla rafgreiningar. 32 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.