Æskan - 01.04.1972, Blaðsíða 31
'
ÍNGIBJÖRG ÞORBERGS:
tal og tónar
U^gur maður skrifaði einu sinni bréf (til
Stefáns Einarssonar) þar sem m. a. stóð:
"Einhver dýpsta sorg, sem ég hef mætt
^ar sú, að móðir mín brendi einu sinni
ynr mér miklum skrifum, sögum og Ijóð-
um, sem ég lá æfinlega yfir að semja, þá
eitthvað 7 ára gamall. Eftir það fór ég altaf
rt1er5 skrif mín eins og mannsmorð, —
Var altaf skrifandi, en læsti.alt niður jafn-
°ðum, einginn lifandi maður fékk að sjá
P93, og ég talaði ekki um það við neinn,
'vorki leiksystkini min né fullorðna. Ég
1 alveg mínu eigin lífi, sískrifandi, hugs-
andi og lesandi —. Ég skrifaði þúsundir
af blaðsíðum heima í Laxnesi og átti fullar
jstur af útskrifuðum stílabókum, — skáld-
ae9ur, smásögur, Ijóð, tímarit og blöð
Sem ég gaf út fyrir sjálfan mig), ritgerðir
um trú, stjórnmál, heimspeki — alt milli
Jmins og jarðar og loks dagbækur. Mest-
0 ||J þessu brendi ég á báli úti á túni áður
en ég fór fyrSt til Reykjavíkur, af ótta við
a einhverjir kæmust í það. — Veturinn
5~~16, áður en ég var fermdur, var ég
Um tíma l Reykjavlk.11
^'3 hafig nú eflaust áttað ykkur á, að
er Halldór Laxness, sem þetta skrif-
aði. Og það verð ég að segja, að miklð
sé ég eftir öllum þeim blaðsíðum, er á
bálið fóru. — Sé eftir hverrl línu, sem þar
var rituð. — Þó verður önnur tilfinning
sterkari. Það er þakklætistilfinningin. — Öll
þjóðin hlýtur að þakka, að þetta frjósama
skáld hélt áfram að skrifa, — og sýndi það
heiminum.
Og nú spyr ég ykkur: — Hver er þá
Halldór Laxness? Ég er viss um, að þið
getið öll svarað því. En kannski ættu sum
ykkar að kynnast honum betur.
Ef ég á að svara spurningunni, er mitt
álit þetta: — Hann er stórkostlegasti rit-
höfundur okkar tíma. — Ef þið trúið mér
ekki, ráðlegg ég ykkur að lesa eftir hann
allt, sem þið getið. Auk þess bið ég ykkur
að lesa um hann. Þið fáið gott tækifæri til
þess nú, því þessi stórmeistari andans
verður sjötugur um þessar mundir, eða
23. apríl.
Að sjálfsögðu eru því tónarnir, sem fylgja
þessu tali, við Ijóð eftir hann. Ljóðið er úr
smásögu, sem heitir „Nýja ísland".
Og i tilefni afmælisins sendi ég Halldóri,
fyrir hönd ungra aðdáenda hans, hjartan-
Þessi mynd er tekin á æskuárum skálds-
ins. Hér er hann ásamt móSur sinni, Sig-
riSi Halldórsdóttur.
legar hamingjuósklr og vona, að hann elgl
eftir að skrlfa mikið enn.
Þó að sagt sé, að ekki eigi að gefa bak-
arabörnum brauð, sendl ég skáldinu visu!
Freyr og Óðinn frægir hér,
fornmenn æðsta töldu þá.
Meðal guða minna er
maður, Laxness heitlr sá.
GLEÐILEGT SUMAR!
INGIBJÖRG.
Halldór Laxness.
------------— -\i
1. Búkolla mín bububu,
Búkolla í fjósinu,
hún er með stóru hornin sín,
lnin er með stóru augun sín,
hlessuð ver ún Búkolla og ún Búkolla mín.
2. Hún mamma sín fór burt burt burt,
burtu fór ún mamma.
Hún mamma er farin hvurt hvurt hvurt,
hvurt er ún farin ún mamma?
Hún kemur eftir jólin og jólin og jólin,
kemur með nýa kjólinn minn og kjólinn og kjólinn.
3. Ekki skulum við skæla og skæla og skæla,
skal ún ekki koma ún mamma og ún mamma,
ún mamma okkar góða og góða og góða,
guð bless ana mömmu og ana mömmu ans litla bróða.
V --*
29