Æskan

Árgangur

Æskan - 01.04.1972, Blaðsíða 26

Æskan - 01.04.1972, Blaðsíða 26
'---------------------------------------------------- Tveggja ára gömul telpa á italíu er að þvl komin að borða foreldra sína út á húsgang, og allt tll þess að bjarga sínu eigin lífi. Lidia Manca, sem borð- ar á við þrjá fullorðna, þjáist af mjög óvenjulegum meltingarsjúkdóml, og ekki er hægt að lækna hana með lyfja- gjöf, og þar við bætist, að telpan er of ung til þess að hægt sé að skera hana upp til þess að lækna hana á þann hátt. Sérfræðingur I Róm hefur skrifað sérstakan matarlista, sem á að tryggja henni nægilegt magn af vítamínum og eggjahvítuefnum, og mundi þessi matur nægja þremur fullorðnum til framfæris. Á hverjum degi þarf Lidia 1 kg af kjúklingum, kálfakjötl eða kanínukjöti. Hún þarf auk þess að borða sex egg, fjögur pund af banönum og svo þarf hún að drekka tvo lítra af mjólk. Siðan drekkur hún þrjá lítra af vatni og borðar gulrætur, sellerí, spínat, smjör, jógurt, ost, baunir og fleira og fleira. Telpan borðar þrjár meginmáltlðir á dag, og aðra hverja klukkustund verð- ur hún að fá sér aukablta. Fjölskyldan er óskaplega fátæk, og faðirinn er at- vinnulaus alltaf annað veifið, en þrátt fyrir það getur hann enga aðstoð fengið til þess að sjá fjölskyldu sinni farborða. Börnin eru þrjú, þ. e. tvö auk Lldiu, og svo langt gengur það stundum, að loka verður hin börnin tvö inni á meðan hún er að borða matinn slnn, vegna þess að þau hafa svo lítið fenglð, að þau gætu ekki horft upp á systurina háma matinn f sig. Koparketillinn sem söng angt uppi í sveit bjó gömul kona í kofa, og hún átti fósturdóttuh sem var svo falleg, að fólk furðaði sig á þvl. Þær voru mjög fátækar, og fósturdóttirin, sem hét Agnes, varð alltaf að sópa og þvo, skúra gólf og fægja glugga, eða annars varð hún a® moka í garðinum og tina ber og hnetur til þess að þær g®tlJ lifað á þelm. Dag nokkurn kom konan og sagði: „Ég þarf að fara ( burtu um nokkurn tíma, þú verður að vera hér og g®ta hússins og garðsins, en eltt máttu ekkl gera — þú mátt ekki sjóða neitt • stóra koparkatlinum. Mundu það!“ Agnes iofaði að muna það, og konan fór svo í burtu, og nú var falleg3 stúlkan eln eftir. Fyrst hafði hún nóg að gera að þrífa til I húsinu, en þegar öllu var lokið, settist hún niður og fór að hugsa: „Ég þyrfti í rauninni að þvo fötln mín, en þá þarf ég að nota mikið af sjóð- andi heitu vatni — og ketillinn minn er of lítill!" Svo varð henni litið á koparketilinn, og hún sagði: „Ég get soðið vatn í honum — ketillinn getur varla skemmzt af því, og ég skal gljáfægja hann á eftir.“ Og Agnes hugsaðl sig ekki um tvisvar, heldur fyllti ketilinn af vatni og set11 hann yfir eldinn, svo settist hún fyrir framan eldstóna. Allt í einu heyrði hún dlmmt hljóð, ekki eins og þegar fer að sjóða I katli' en næstum þvl eins og rödd, sem ætlar að fara að syngja, og eftir dálit|a stund fór hann líka að syngja: Rikir I kóngsins rauðu borg reginkvíði og mikil sorg: Prinsinn heiman horfinn er. Hann nú töfraviðjar ber, sem nornin hefur bölvuð bundið. En brátt þú getur hann samt fundið. Hjá vatnsins bakka steinn einn stendur. Á steinlnn legðu þínar hendur og hugrökk þlna hjálp þá lætur og hrópar: „Á fætur! Á fætur!" Þá er prins úr töfraviðjum tekinn og tröllagaldur allur burtu rekinn. 24
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.