Æskan - 01.04.1972, Qupperneq 24
Sigrún Oddsdóttir. Stúkan Siðsemd.
Barnastúkan SiSsemd nr. 14 í Garði varð 80 ára 4. des. 1971.
Aðalhvatamaður að stofnun hennar var sr. Jens Pálsson á Út-
skálum. Fyrsti gæzlumaður var uppeldlsdóttir hans, Anna Sig-
urðardóttir. Hún gegndi því starfi f nokkur ár. Einar Magnússon
skólastjóri Gerðaskóla var gæzlumaður í 30 ár. Af honum tók við
Una Guðmundsdóttir (öðru nafni Völva Suðurnesja) og var gæzlu-
maður í 27 ár. Þegar hún hætti, tók Þorsteinn Gíslason, skóla-
stjóri og skipstjóri, við barnastúkunni og sá um hana, unz hann
fluttist til Reykjavíkur. 9. febrúar 1963 verður Sigrún Oddsdóttir
1. gæzlumaður stúkunnar og hefur verið það síðan. Steinunn
Sigurðardóttir er 2. gæzlumaður. Stúkan hefur starfað nær óslitið
allan þennan tíma og ávallt verið óskaþarn byggðarlagsins. A
seinni árum hafa börnin nær eingöngu séð um skemmtiefnl á
fundum. Skemmtiefni er margvíslegt, svo sem leikþættir, upp'
lestur, söngur, getraunir og fleira. Félagar eru nú 100. AIIs hafa
verið haldnir 1076 fundir og jafnan vel sóttir, og eitt er það, sem
einkennir börnin sérstaklega. Það er, hve stundvis þau eru.
Fundarstjórn Sigrúnar er sérlega góð. Man ég ekki eftlr að hafa
setið betri barnastúkufundl nema ef vera kynni á Akranesi. A
þessum tfmamótum vil ég færa þeim gæzlumönnunum, Slgrúnu
og Steinunni, þeztu árnaðaróskir og vona, að barnastúkan I
Garðinum eigi eftir að eflast í framtíðinni. Hifmar Jónsson.
á loft. Alfreð og Raggi velfuðu eins lengi og þeir sáu til
Pésa.
Pési komst klakklaust til Bala Hala, og þar tók Drésl
þróðir hans á móti honum.
Lýkur þar með sögunnl af Pésa ferðalang.
_________________ ________________________________________
22