Æskan - 01.02.1973, Síða 37
Nokkur bréf hafa borizt þessum þætti
'heð fyrirspurnum um nýjungar í skólamál-
sem núna eru til umræðu á Alþingi.
u. Það er rétt, að i desember s. i. kom
ram á Alþingi stjórnarfrumvarp tii laga um
eimild til þess að stofna svokallaðan fjöl-
r3utaskóla. Er þar gert ráð fyrir, að hér
um tilraunaskóla að ræða og þá i
eykjavík, en jafnframt heimilt að stofna
slika skóla annars staðar. Skal nú rakið
e,ni5 [ frumvarpinu í stórum dráttum og er
stuðzt við það, sem blöðin skrifuðu um
Petta fyrir jólin:
^rumvarp svipaðs efnis var lagt fyrir síð-
®s,e Alþingi, en varð þá ekki útrætt. Þó eru
p®r breytingar gerðar, að heimilt er að
s'ofna slíka skóla einnig utan höfuðborgar-
'nr|ar. Jafnframt er tekið upp nafnið fjöl-
rautaskóli ( stað „sameinaður framhalds-
skóii" sem áður var notað.
Sameinaður
skóli á framhaldsstigi
Með frumvarpi þessu, ef að lögum verð-
ur, er stofnað til nýs skóla í tiiraunaskyni,
sem ætlað er að annast menntun allra nem-
enda ákveðins skólahverfis á tilteknu ald-
ursstigi, án tillits tii fyrirhugaðrar náms-
brautar hvers og eins, og sameinar skólinn
þannig í eina heild hinar ýmsu tegundlr
skóla á framhaldsstigi.
Þar sem hér er um að ræða frávik frá
því skipulagi, sem nú er lögÞoðið, er nauð-
synlegt að afla tilraun þessari lagaheim-
ildar.
Markmið þeirrar tilraunar, sem felst (
stofnun slíks skóla, er sumpart hagkvæm-
ara ytra skipulag, en þó umfram allt breyt-
ingar á hinu innra skólastarfi, er miða að
því að auka jafnrétti nemenda með ólíka
hæfileika og ólík áhugaefni og að draga úr
því vanmati og vanrækslu á tilteknum náms-
brautum, sem skiptingu námsbrauta á að-
skildar og óiíkar skólagerðir hættir tll að
hafa í för með sér.
Eykur tækifæri nemenda
Jafnframt stefnir tilraunin að því að gefa
nemendum tækifæri til að velja sér náms-
braut í sem fyllstu samræmi við þann áhuga
og getu, sem vaxandi þroski þeirra á fram-
haldsskólaaldrinum kann að leiða i Ijós, og
að hverfa frá þeirri hefð, að nemendum sé
við ákveðinn aldur skipað í skóla, þar sem
þeir eru i eitt skipti fyrir öll útilokaðir frá
tilteknum námsbrautum. Sameining sem
flestra námsbrauta (einni skólastofnun auð-
veldar mjög flutning milli námsbrauta og
eykur þannig tækifæri nemenda til að velja
sér endanlegan námsferil og starfsferil við
sitt hæfi.
Megineinkenni fjölbrautaskóia er þvi, að
nemendur hans geta valið um fjölbreytt
nám og mismunandi námsbrautir, hvort
heldur til undirbúnings undir störf í hinum
ýmsu greinum atvinnulífsins eða undir
áframhaldandi nám í sérskólum og háskóla
eða öðrum menntastofnunum á háskólastigi.
Sem dæmi um námsbrautir má nefna
menntaskólanám, verzlunarnám, hússtjórn-
arnám og iðn-, iðju- og tækninám. Þótt svo
sé til ætlazt, að skólinn bjóðl kennslu allt
að stúdentsprófi, er jafnframt gert ráð fyrir
skemmri námsferli, alit eftir eðli þess
náms, er nemendur stunda og kröfum þeirra
starfa eða sérnáms, sem þeir stefna að.
Ríkið greiði 60% kostnaðar
Tilraunaskóli sá, sem hér um ræðir,
spannar fleiri en eitt skóiastig, þ. á m. gagn-
fræðastigið, þar sem skólar eru reknir sam-
eiginlega af ríki og sveitarfélögum, og
menntaskólastigið, sem er algjörlega á veg-
um ríkisins.
Miðað er við að ríklssjóður greiði 60%
af stofnkostnaði skólans, laun skólastjóra
og kennara I samræmi við samþykkta starfs-
áætlun og helming annars kostnaðar. Er
hér miðað við, að þátttaka rikissjóðs verði
sem næst því er yrði, ef byggðir yrðu
og starfræktir skólar samkvæmt núverandi
skólafyrirkomulagi fyrir þann nemenda-
fjölda, er fjölbrautaskóla er ætlað að hýsa,
segir í athugasemdum, sem fylgja frum-
varpinu.
10 BLÖÐ
Á ÞESSU ÁRI
m
I STAÐ 9 ÁÐUR
UPPLAG:
18 000 EINTÖK
35