Æskan

Årgang

Æskan - 01.04.1976, Side 26

Æskan - 01.04.1976, Side 26
Grísirnir litlu prír AMERÍSK ÞJÓÐSAGA inu sinni voru þrír litlir grísir, sem héldu út í heim til að freista gæfunnar. Fyrsti grísinn var óttalegt letiblóð. Á leiðinni mætti hann karlhrói með hálmbúnt og nennti þá ekki að fara lengra, en sagði við hann: — Gamli minn góði, gefðu mér þennan hálm I hús. Karlinn gaf honum hálminn, og litli grísinn gerði sér hús úr honum. Skömmu síðar átti úlfurinn þar leið hjá, barði að dyrum hjá litla grísnum og sagði: — Litli grís, litli grís, hleyptu mér inn, inn, inn. En litli grísinn svaraði: „Nei, þú stígur ekki fæti í kofann minn, minn, minn. Þá svaraði úlfurinn: — Þá harka ég, þá skarka ég og sparka ég I sundur bústað þinn, þinn, þinn. Og svo harkaði hann og skarkaði hann og spark- aði hann, og af því að húsið var gert úr tómum hálmi, hrundi það brátt saman, og síðan át úlfurinn þennan litla grís. Annar litli grísinn var ekki alveg eins latur og sá fyrsti, en vinnugefinn gat hann ekki talist allt um það. Hann mætti karlinum með hálmbúntin, en gekk fram hjá honum. Litlu síðar mætti hann öðrum karli með bambusþúnt. Þá fannst honum hann vera bú- inn að ganga nógu lengi og sagði við hann: — Gamli minn góði, gefðu mér þessar stengur til að gera mér úr þeim hús. Karlinn gaf honum bambusreyrinn og litli grlsinn reisti sér hús úr honum. Skömmu síðar átti úlfurinn leið fram hjá, barði a<5 dyrum hjá litla grísnum og sagði: — Litli grís, litli grís, hleyptu mér inn, inn, inn- En litli grísinn svaraði: — Nei, þú stígur ekki fæti ( kofa minn, minn, minn- Þá sagði úlfurinn: — Þá harka ég, þá skarka ég, og sparka ég i sundur bústað þinn, þinn, þinn. Og svo harkaði hann og skarkaði hann og sparkaði hann, og af því að húsið var gert úr veikum reyr. hrundi það brátt saman, og síðan át úlfurinn einnig þennan litla grís. Þriðji litli grísinn var miklu iðjusamari og du9' legri en hinir tveir. Fyrst mætti hann karlinum með hálminn, en skildi strax, að ómögulegt væri að gera sér traustan bústað úr hálmi og gekk því fram hjá honum. Því næst mætti hann karlinum með bambus- reyrinn, en honum fannst það ekki heldur nógu gotí efni í almennilegt hús. Þess vegna labbaði hann enn um stund, uns hann mætti karli með tígulsteina °9 sagði við hann: — Gamli minn góði, gefðu mér þessa steina I hús. Karlinn gaf honum steinana, og litli grísinn gerði sér hús úr þeim. Skömmu síðar átti úlfurinn leið þar hjá, drap ^ dyr hjá litla grísnum og sagði: — Litli grís, litli grís, hleyptu mér inn, inn, inn- En litli grísinn svaraði: Jacques Piccard komst niður á meira en 10.000 metra hafdýpi ( kafarakúlu sinni, sem er 2,18 m í þver- mál, í Marianagröf Kyrra- hafsins. Kúlan var gerð úr þrem smlðastálstykkjum, sem síðan voru logsoðin saman, og á henni voru tveir gluggar úr um það bil 20 cm þykku gleri. Kúlan var ekki látin síga niður í djúpið á streng frá skipi, heldur ,,sveif“ ( sjónum eins og loftbelgur ( loftinu. „Flotholt" hennar var geym- ir, fullur af sérstaklega léttri Á TÍU ÞÚSUND METRA HAFDÝPI bensíntegund, sem tengdur var við hana ofanverða og knúði hana upp á við, en „sakkan“ var forði af blý- kúlum. Bensínið samsvarar því gasinu í loftbelgnum, en blýkúlurnar sandpokunum. Var því hægt að komast á meira dýpi með þv( að hleypa út bensíni, en stfga ofar með því að sleppa blý- kúlum. Neðan ( kúluna var svo fest stálstykki, til þess að koma ( veg fyrlr, að hún rækist harkalega á hafs- botninn. 24

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.