Æskan

Volume

Æskan - 01.04.1976, Page 28

Æskan - 01.04.1976, Page 28
JOHANNA 8 BRYNJÓLFSDÓTTIR: Yndislegasta árstlðin finnst mér alltaf vera vorið — vorið með sólina og vorblæinn. Þegar lífið vaknar af blundi sínum og teygir fagnandi frjóanga sína móti sól og sumri. Börnin fagna vorinu sem kemur með sól og hita og hægt er að leika sér úti allan sumardaginn. Og litlu lömbin fæðast og hlaupa um grösuga bala — allt tekur að lifna við til sjós og lands, og blómin fara að springa út í öllum litum inn um dali og fjöll. Jörðin tekur að ilma af lyngi og blómum og klæðist loks sumarskrúða. Fossarnir falla fram af flúðum sem áður voru bundnir í viðjar klaka og snjóa •— litlu lækirnir skoppa hjalandi um grösuga dali — þar til allt kveður við af vorsöng náttúrunnar. FUGLAR Fuglar eru eitt af táknum sumars og sólar, og Þar sem þeir fljúga um bláa loftsali himinsins er sem sál okkar fái líka vængi og svífi um frjáls og frelsuð úr viðjum efnisins sem bindur okkur við jörðina lengstum. Þegar söngur fuglanna berst okkur er sem mál heims sem er æðri og betri berist oss og unaður sá er söngfuglarnir bera okkur getur ekkert hljóðfseri okkar jarðarbarna borið. Engin hljómsveit né hljómlist getur hrært strengi sálarinnar sem fuglanna hljómþýða sveit, er hún berst eyrum vorum á sínu hreina einfalda máli. Hversu einfaldur og undurfagur er ekki söngdr heiðlóunnar, svo tregablandinn og blíðsár, og hversu taka ekki hjartastrengir okkar undir þessa tóna, þ6ir eru eins og svör við okkar eigin kenndum. Enginn hefur kennt þessum söngvurum ioftsins að stilla strengi sína. Guð htrnms og heima gaf þeim þessa dýrlegu tóna, og enginn mannlegur máttur getur bsett verk hans. Fuglarnir gefa sálum okkar fögnuð frelsisrns, von og trú á mátt lífsins yfir þunga efnisins, og styrkja trú okkar á mátt andans yfir efninu, þeir eru himna- verur sem komnar eru niður til okkar til að glæða með okkur vonina, trúna og kærleikann. 26

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.