Æskan - 01.09.1976, Blaðsíða 26
ÞaS kMnur fyrir, a5 grípa þarf til pelans.
|ædýrasafnið var fyrst opnað almenningi 8.
maí árið 1969. Tilgangur þess er að efla
áhuga almennings á fiska- og dýralífi og atvinnu-
háttum til lands og sjávar, svo og að vekja áhuga
á vísindarannsóknum á þessum sviðum. Sædýrasafn-
ið er sjálfseignarstofnun. Félagar geta þeir orðið,
sem vilja vinna að markmiði félagsins og náð hafa
16 ára aldri. Inntökugjald er kr. 1000. Margir skóla-
menn hafa sýnt Sædýrasafninu mikinn áhuga og hef-
ur fjöldi kennara heimsótt safnið ásamt nemendum
sínum. Nokkrir kennarar hafa kennt fiska- og nátt-
úrufræði í safninu, en aðrir hafa komið í heimsókn
jafnframt fiskifræði- og náttúrufræðinámi. í sumum
IfEDÝRnJfl
lÁm hálf millpn $
tilfellum hafa nemendur átt að afla sér fróðleiks og
skrifa svo ritgerð um heimsókn sína.
Margir þéirra skólastjóra og kennara sem hafa
hagnýtt sér Sædýrasafnið til heimsókna og náms,
hafa látið í Ijós ánægju sína með að eiga þess kost
að hafa slíka aðstöðu. Sú skoðun hefur mjög rutt
sér til rúms, að almennt nám þurfi að gera lífrænna.
Þetta á ekki s'st við nám í náttúrufræði. í Sædýra-
safninu gefst ágætt tækifæri til þess. Einstökum
bekkjum og skólahópum er veittur 20% afsláttur af
aðgangseyri til að ðuðvelda nemendum að heim-
sækja Sædýrasafnið, þeim til þekkingarauka. Stjórn
safnsins hefur sett reglur urn umgengnishætti í safn-
inu og eru þær í 6 liðum:
1. Hlífið grasblettunum sem mest við óþarfa traðki-
Það er notalegt að tylla sér í grasið þá fáu daga.
sem veðrið er gott á sumrin, en grassvörðurinn þolir
ekki, að sífellt sé gengið eða hlaupið yfir blettina.
i 2. Takið tillit til þess, að bannað er að fóðra seli.
hreindýr, ísbirni, apa og mörgæsir. Fóðrið einungis
þau dýr, sem heimilað er að fóðra, en það er aug-
lýst með áberandi skiltum.
3. Gætið þess að kasta umbúðum og öðru drasli
einungis í ruslatunnurnar á sýningarsvæðinu. Kastið
ekki neinu drasli eða umbúðum til dýranna, og Því
síður steinum. Það getur verið þeim hættulegt, jafn-
vel banvænt.
4. Hrekkið ekki dýrin eða ertið þáu. Reynið ekki
að gera dýrunum bilt við. Takið heldur ekki í horn-
in á geitunum eða kindunum.
5. Hafið ekki í frammi óþarfa hávaða á sýningar-
svæðinu. Hróp, ærsl eða óheyrilega hátt stillt útvarps-
tæki trufla sum dýranna; þau verða jafnvel hrædd, og
ærsl eru öðrum gestum til óþæginda.
6. Klifrið ekki eða prílið á girðingum eða handrið'
um. Stingið heldur ekki fingrum í gegnum net eða
hendi á milli rimla. Slíktgetur verið hættulegt. Tak-
ið sérstakt tillit til viðvörunarskilta.
Þegar Sædýrasafnið var opnað, var einungis um
ÆSKAN - Foreldrar! LeyffíS börnum ykkar að gerast áskrlfendo^-