Æskan

Árgangur

Æskan - 01.05.1983, Síða 16

Æskan - 01.05.1983, Síða 16
 y Þremur mínútum síöar lá afbrota- maðurinn þarna fyrir framan þá, heftur og bundinn, svo að hann gat hvorki hreyft legg né lið. Nú 'gátu drengirnir andað léttar, því að þetta var sannarlega bæði erfitt og taugaæsandi verk. „Við skulum binda hann fastan við tréð þarna, og síðan gerum við hreppstjóranum viðvart," sagði Róbert. Það heyrðust margvísleg hljóð frá manninum í pokanum, en það var ekki svo auðvelt fyrir hann að gera sig skiljanlegan, þar sem drengirnir höfðu bundið svo kirfi- lega fyrir munninn á honum, enda skildu þeir ekki eitt einasta orð af því, sem hann reyndi að segja. Hreppstjórinn varð bæði undr- Íandi og glaður, þegar Anton kom inn á skrifstofu hans og skýrði frá því, að Róbert bróðir hans héldi vörð yfir afbrotamanninum, sem auglýst var eftir. Hreppstjórinn þreif embættishúfu sína af snaga á veggnum og fylgdi drengnum eftir. Anton minntist þess ekki að hafa nokkurn tíma áður fundið svona mikið til sín. Þegar þeir komu á staðinn, sat Róbert á steini í þriggja metra fjarlægð frá bandingjanum. „Já, einmitt það,“ sagði hrepp- stjórinn og virti manninn í pokanum fyrir sér, „svo að þið hafið klófest afbrotamanninn þarna.“ Hann færði sig nær honum og ýtti svolítið við honum. Um leið reyndi fanginn að gefa frá sér óskiljanleg hljóð. „Við verðum að losa svolítið um hann svo hann geti gert sig skiljan- legan,“ sagði hreppstjórinn, um leið og hann dró lítinn hníf upp úr vasa sínum. Síðan risti hann gæti- lega stóra rifu á pokann, svo að andlit fangans sást greinilega. Ant- on og Róbert áttu bágt með að Þessi sjó-skíðakappi mun vera sá yngsti sem fæst við þessa íþrótt í heiminum. Aðeins sex mánaða gamall fór hann sína fyrstu ferð og nokkrum mánuð- um síðar var hann búinn að ná mikilli leikni í íþróttinni. Það þarf ekki að taka það fram að foreldr- ar hans eru sjóskíðakennarar og snáðinn er nú kominn í heims- metabókina. skella ekki upp úr, þegar þeir sáu, hvað maðurinn var undrandi og spyrjandi á svipinn. „Hvað á þetta eiginlega allt saman að þýða?“ hrópaði hann. „Hér er ráðist á frið- samt fólk, án þess að það fái tæki- færi til að verja sig, og svo er sjálfur hreppstjórinn í samsærinu.l „Takið það rólega, maður minn,“ sagði hreppstjórinn, „ég veit ekki til, að þér hafið orðið fyrir svo miklu aðkasti, en nú gefst yður tækifæri til að segja til nafns yðar.“ „Ég heiti Friðrik Albertsson, og það hef ég heitið síðan presturinn skírði mig,“ sagði ókunni maðurinn, „og aldrei nokkurn tíma hef ég gert neitt, sem gefur tilefni til þess, að á mig sé ráðist. Ég er á leið til systur minnar og manns hennar, sem búa hér í grenndinni. Hún heitir Álfhildur og hann heitir Kári, og þau eiga tvo drengi, sem heita Anton og Róbert. Þetta er í fyrsta skiptið, sem ég fer til að heimsækja þau, síðan þau giftu sig.“ „Þarna skall hurð nærri hælum,“ sagði hreppstjórinn og gaut augun- um stríðnislega til drengjanna, sem stóðu hreyfingarlausir og andlitin voru að sjá eins og stór spumingarmerki. Þeir litu hvor á annan og litu síðan á manninn í pokanum og sögðu báðir í kór: „Friðrik frændi." Síðan bætti Anton við: „Og við sem héldum, að þú værir afbrotamaður- inn, sem auglýst var eftir í útvarpinu." Svo fékk Friðrik frændi að heyra alla sólarsöguna, og þar sem hann var maður sem kunni að taka góðu gríni, veltist hann um af hlátri. Hreppstjórinn gat heldur ekki stillt sig, og í fyrstu var ekki laust við, að bræðurnir væru skömmustulegir. „Þú hefðir í öllu falli getað klaett þig í öðruvísi föt,“ sagði Róbert, og þar var bróðir hans honum hjartan- lega sammála. Sigríður J. Hannesd. þýddi.

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.