Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.05.1983, Qupperneq 19

Æskan - 01.05.1983, Qupperneq 19
Ur'nn sér rétt sem snöggvast. Allt 9ekk að óskum, litla lambið var bólu- Sett eins og hvert annað líflamb. andaði fóstran léttar en nokkru sinni fyrr, hún vissi að faðir hennar tæri ekki að slátra lambi sem ekki m®tti nýta til fulls. Því var það n®sta svar við ákvörðun um líf eða dauða lambsins, að ekki væri ráð að lóga því, fyrst búið væri að bólu- Setja það. ^aestu áhyggur voru, hvernig mundi ganga með lambið þegar Vetraði, og fé tekið í hús, gæti litla kindin sameinast öðrum kindum? ^ún sem alin var upp með mönnum. En allar slíkar hugsanir v°ru óþarfar. Lambið varð eitt af lembunum, sem áttu lífið framund- an> svo langt sem auðnan leyfði, a^eins nokkur ár, því um þessar mundir geisaði hér á landi veiki í fé Sem nefnd var mæðiveiki og hún Varð þessari kind að aldurtila eins °9 svo mörgum öðrum kindum á Peim tíma. ^nginn efi er, að bólusetning ^mbsins átti stóran þátt í lífgjöf pess. Því hefur bólusetningarmað- Ur|nn verið mikið lofaður af ungu ambfóstrunni, sem nú er fullorðin Ve*> °9 velgjörðamaðurinn genginn a vit feðra sinna fyrir allmörgum árum. Alla ævina hefur fóstran borið í 'jósti þakkir fyrir þetta vinarbragð, ar hann sýndi með bólusetningu ambsins. Hún var lífgjöf Heima- Uutar, en það var nafn heimaln- 'n9sins. Vigdís Einarsdóttir. Við höfðum boðið frænku okkar sem er 78 ára gömul í viku ökuferð um Jótland. Hún var glöð eins og barn og ákveðin í að fá eins mikið út úr ferðinni og mögulegt væri. Við létum hana merkja við þá staði, sem hana langaði mest að sjá. Lengsta ferð sem hún nokkru sinni hafði farið áður var til Álaborg- ar sem var 40 km frá heimili hennar. Við skipulögðum ferðina eins og hægt var eftir óskum hennar, en það kom fljótt í Ijós að ferðaáætlunin stóðst ekki. Hún var ekki ánægð ef við ókum fram hjá kirkju eða kirkju- garði, án þess að stansa. Áhugi hennar var takmarkalaus, og hún spurði alla sem hún hitti í bæjum og þorpum um alla mögulega og ómögulega hluti. Hún vildi sjálf kaupa nesti sem við keyptum til dagsins, því þá gat hún talað við afgreiðslufólkið í búðunum, og hún sleppti aldrei að bera saman þorpið sitt og staði sem hún kom til, því eins og hún sagði hafði fólk gott af að heyra hvernig væri ann- arsstaðar. Hún hafði aldrei fyrr búið á hóteli, og hún naut þess þegar við á kvöld- in settumst að á hóteli og borðuð- um kvöldverð. Hún var óþreyttust af okkur öll- um, og næsta morgun fór hún eld- snemma á fætur og fór út að skoða bæinn. Þegar við svo kom- um til morgunverðar hafði hún þeg- ar skoðað ýmislegt. Hún var með stílabók þar sem hún skrifaði ná- kvæmlega í, til að gleyma ekki að segja frá öllu þegar hún kæmi heim. Við vorum mjög ánægð að sjá okkar kæru frænku svona hressa og úthaldsgóða, og hvað hún fékk mikið út úr ferðinni. Þegar hún var ung fór fólk ekki í ferðalög eða skemmtitúra eins og nú. Hún dó 90 ára gömul, en meðan hún lifði talaði hún alltaf um ferðina, og það sem kynntist í „ferðinni" rýrnaði ekki að gæðum er árin liðu. Eftirmáli Af lýsingunni finnur maður gleði hennar yfir öllu stóru og smáu sem ferðin bauð upp á. Þegar maður heyrir um slíka gleði vegna ferðar- innar verður maður ergilegur yfir eigin heimtufrekju og óánægju. Kannski finnast hér og þar gaml- ar frænkur sem yrðu hamingjusam- ar af álíka ferð. En hvað með gleðina af að gleðja aðra? M.H. þýddi úr dönsku. Huggaðu alfaðir, góða barnið blíða bjartir guðs englar vermi hugans mál. Réttu út föðurarminn þekka, þýða, þroskaðu drottinn barnsins hreinu sál. Gefðu því ró svo friðinn finna megi, friðarins engill gleðji hjarta þitt. Hamingju boði á þínum verði vegi, Verndaðu drottinn elsku barnið mitt. (Árni Erasmusson) 19

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.