Æskan - 01.05.1983, Blaðsíða 30
59. Strax og hún haföi leyst það, tók stráksi af
sér „bjarnarhausinn". Þá þekkti hún hann og
ætlaði að springa af kæti. Hún vildi fara strax til
föður síns og kynna hann, sem hafði frelsað
hana frá tröllunum.
60. En stráksi gat fengið hana til að bíða til
næsta morguns. Þá fóru þau til kóngsins og
sögðu honum allt. „Já, úr því að þú hefur fundið
hana, þá færðu hana“, sagði hann. — Svo giftust
þau og áttu hamingjuríka ævi saman.
manmrn
■■■■
hh
HERAHIRÐIR
KÓNGSIIVS
1. Það var einu sinni maður, sem átti þrjá syni.
Þeir hétu Pétur, Páll og Ebbi. Pétur hafði heyrt
að kónginn vantaði mann til að gæta héra sinna.
— Þetta er hásett staða, hugsaði hann með sér.
2. Pétur lagði af stað og labbaði meðfram ár-
bakkanum. Eftir stutta göngu hitti hann gamla
kerlingu, sem hafði fest nef sitt í viðarbúti. Hann
stansaði um stund, fannst þetta bráðfyndið og
skellihló.
Skemmtileg myndasaga í litum