Æskan - 01.05.1983, Page 31
ÞEKKJA OKKUR EKKII
SUNDUR"W
Þær heita Anna Guðrún og
Guðný Ingibjörg. Mamma þeirra
heitir Steinunn en pabbinn Jón.
Þ®r eiga eina systur, hún heitir
Svandís og er 10 ára. Anna Guðrún
°9 Guðný Ingibjörg eru tvíburar og
ei9a heima í Árbænum. Þær fara í
2' bekk Árbæjarskóla í haust.
Blaðamaður Æskunnar hitti þær á
förnum vegi og hóf að rabba við
þeer.
~ Hvernig er það, stelpur, eiga
ekki margir erfitt með að þekkja
ykkur í sundur?
"Jú, sérstaklega þegar við erum
eins klæddar," sögðu þær. „Nýlega
v°rum við í heimsókn hjá vinkonu
okkar.
- Þá gerðist það að önnur okk-
ar skellti óvart hurðinni á hana. Hún
meiddi sig, fór að hágráta og
öskraði: „Anna Guðrún skellti á mig
hurðinni, en það var sú okkar sem
var saklaus. Þá hló fullorðna fólkið
sem var þarna.“
- Hvernig leikið þið ykkur?
„Við erum mikið í mömmuleik,
með dúkkur og búadót. Einnig er
gaman í spili sem heitir Mix-Max.
Þá á maður að reyna að draga
spilasamstæðu."
- Eigið þið marga leikfélaga?
„Já, og þeir heita: Hidda, Jóna,
Jenný, María, Alexandra, Sirrý og
Kolla. Það er gaman að leika sér
viö þær.“
^viburarnir Anna og Guðný.
Allir strákar leiðinlegir
- Leikið þið ykkur aldrei við
stráka?
„Nei, allir strákar eru leiðinlegir.
Þeir eru alltaf að stríða okkur.“
- Haldið þið að það sé gaman
að vera fullorðinn?
„Já, það er örugglega gaman að
vinna.“
- Ætlið þið að eignast mörg
börn í framtíðinni?
Guðný Ingibjörg: „Ég vil eiga
þrjú. Það verða stelpur. Þær eiga
að heita Rósa, Sirrý og Anna.
Anna Guðrún: „Ég ætla líka að
eignast þrjár stelpur. Þeirra nöfn
verða: Kolbrún, Lísa og Guðný.“
- Ætlið þið að búa í Reykjavík?
„Já.“
- En hvað eiga mennirnir ykkar
að gera?
Anna Guðrún: „Minn á að vera
almennilegur maður. Hann á að
vinna á leigubíl eins og pabbi okkar
gerir á kvöldin."
Guðný Ingibjörg: „Minn á að
vinna hjá bílaumboði. Þar vinnur
pabbi okkar á daginn.“
- Að lokum: Hvað finnst ykkur
skemmtilegast að læra í skól-
anum?
„Stærðfræði," sögðu þær einum
rómi án þess að hugsa sig nokkuð
frekar um.
Að þeim upplýsingum fengnum
kvöddum við þessa tvíbura í Árbæ.
- E.l.
31