Æskan - 01.05.1983, Side 39
Seglbrettasiglingar
Seglbrettasiglingar, en vinsældir þeirra erlendis á síöustu
^eimur árum hafa orðið ótrúlega miklar.
Kjölbátasiglingar
Kjölbátasiglingar hafa orðið vinsælli með hverju árinu
hér á landi og munu nú vera u. þ. b. 40 kjölbátar í notkun
vítt og breitt um landið. Þessir bátar eru flestir frá 18-30 fet
(5,45m-9m) og gerðir til fjölskylduferða, innan fjarða yfir-
þó sigla megi þeim á opnu hafi með töluverðu öryggi,
et Þeir eru vel útbúnir og mannaðir góðri áhöfn.
Kjölbátasamband íslands er félag kjölbátaáhugamanna
um allt land, en formaður þess nú er Sigurður Ólafsson
Hegranesi 31, Garðabæ, s-42865.
^óðrar
Róðrar hafa lítið verið stundaðir sem trirnm og keppnis-
'þmtt hér á landi, en nú eru hins vegar líkur á að áhugi fari
aö vakna, þar sem aukin áhersla verður lögð á næstunni á
aö kynna róðraríþróttina sem gagnlegt trimm fyrir alla. Er
fyhrhugað að fá til landsins 4 manna (3 ræðarar og stýri-
^aður) róðrarbát úr trefjaplasti, sem ætlaður er sérstaklega
kynningar. Verður báturinn fyrst um sinn til sýnis og
reynslu hjá Siglingaklúbbnum Þyt, Hafnarfirði, og eru þeir
Sem áhuga hafa á að kynna sér róðra og reyna bátinn
éeðnir um að hafa samband við umsjónarmann þáttarins.
Optimlstseglbátur
í 5.-6. tbl. Æskunnar 1979 var sagt frá uppruna
Optimistseglbátsins, heitum í bátnum og öryggisreglum um
notkun hans. Auk þess voru veittar almennar upplýsingar. í
næsta blaði mun ég halda áfram með kynningu á optimist-
bátnum.
Þeir sem hafa áhuga á upplýsingum um siglingastarf
innan Siglingasambands íslands, SÍL, eða aðildarfélaga
þess, eða ráðgjöf um val á fleytu, geta fengið þær með því
að hafa samband við umsjónarmann þáttarins Pétur Th.
Pétursson, Hverfisgötu 7, 220 Hafnarfirði, í síma 50370 og
51512.
kannt þú skutulsbragð?
SKUTULSBRAGÐ
hentar til að binda bát við staur.
Hann er oftast auðleystur.
(HESTAHNÚTUR)
þið hafið sjálfsagt öll orðið fyrir því,
að mýfiuga biti ykkur, en vitið þið eigin-
ie9a hvað það er sem gerist við slíkt
taekifæri, þegar flugan sest á hand-
ie9ginn á ykkur eða fótinn og „fer að
éfyna busana?“ Flugan hefur nefnilega
ðoífa, sem hún notar þegar hún stingur,
°9 meira að segja ekki færri en 6. Tveir
Hnífarnir eru „kjaftabeinin," tveir eru
kjaftaklaernar, svo kemur broddurinn
°9 loks skolturinn. Þegar flugan stingur
ð°rar hún fyrst gat með skoltinum og
^orar síðan öllum fimm hnífunum ofan í
9atið. Ef þið gætuð séð mýflugu í
s,®kkunargleri meðan hún er að
stin9a, sæjuð þið að allir hnífarnir
^örfa inn í hörundið.
Einn af hnífunum, broddurinn, er hol-
ur að innan og úr honum kemur safinn í
sárið. í þessum safa eru sveppir sem
gerjast, svo að hörundið þrútnar. Líka er
í safanum efni, sem hindrar að blóðið
storkni, því að flugunni kæmi það illa ef
mannsblóðið storknaði í broddinum á
henni og stíflaði hann og jafnvel kjaftinn
líka.
Ef þið sjáið flugu sem er að sjúga úr
ykkur blóð þá skuluð þið láta hana eiga
sig. Hún sýgur nefnilega mestan hlut-
ann af eitrinu sem hún spýr, ofan í sig
aftur. - Á myndinni sjáið þið mikið
stækkaða mynda af þessari leiðu
skepnu.