Æskan

Årgang

Æskan - 01.05.1983, Side 48

Æskan - 01.05.1983, Side 48
Vill komast í sveit Æskupóstur! Ég er 13 ára og mig langar mjög mikið til að komast í sveit. Hvernig á ég að snúa mér í því máli? Á ég að aug- lýsa [ blöðum? Þarf ég nokkuð að borga með mér ef ég hjálpa til við hey- skapinn? Ég vona að þetta bréf birtist. Kær kveðja, Sæmundur Óli Árnason, Reykjavík. auglýsa í blöðum. Slíkar auglýsingar bera stundum árangur. Æskupósturinn vonar að þér verði að ósk þinni. Eru bréfin lesin? Æska! Mig langar til að þakka gott blað og spyrja spurninga sem ég vona að verði svarað. 1. Lesið þið öll bréf sem berast? 2. Er mörgum bréfum hent? 3. Má maður senda efni í blaðið? 4. Má maður senda ykkur myndir úr heimabyggð sinni? Bestu kveðjur. Hulda Jónsdóttir, Bæ, Reykholtssveit, Króksfjarðarnesi. Æskupósturinn hafði samband við Ráðningarstofu Búnaðarfélags íslands og fékk þær upplýsingar að hún útveg- aði unglingum frá 13 ára aldri dvöl í sveit eftir því sem hægt væri. í fyrra sóttu 389 unglingar um sveitastörf en rúmlega sjötíu af hundraði komust að. Þú talar um vinnu við heyskap. Nú er það orðið þannig að hún fer að mestu leyti fram með vélum en sennilega fengirðu eitthvað annað að gera. Mis- jafnt er hvað unglingar fá í kaup en þó er ætlast til að þeir fái eitthvað. Önnur leið til að komast í sveit er að Svar: 1. Já, við lesum öll bréf. 2. Það fer eftir efni þeirra. Bréf með ábendingum og óskum eru geymd en bréf sem eru aðeins send sem svör við getraunum eru látin í ruslakörfuna, þegar búið er að draga. 3. Gjörðu svo vel. Við viljum fá sem mest efni frá lesendunum sjálf- um og reynum að birta það eftir því sem tök eru á. 4. Það er velkomið. í næsta blaði óskum við einmitt eftir myndum og heitum verðlaunum fyrir mynd mán- aðarins. Skallapopp og Clash Kæra Æska. Getið þið upplýst mig um það hvað skallapopp er? Við erum alltaf að rífast um það hérna heima. Getið þið líka upplýst mig um það hvað hljómsveitin Clash hefur gefið út margar plötur. Kveðja S.J. Skallapopp er sama fyrirbærið og iðnaðarpopp. Það er laust við allt sem heitir sköpunargleði og andagift. Það er framleitt á færibandi eins og hver önnur iðnaðarvara. fslenskir skallapopparar nota yfirleitt formúluna: „Gamlir útlendir slagarar, íslenskir bulltextar, óbreyttar útsetningar, eitt lag miðað við óskalög sjómanna, annað við óskalög sjúkl- inga, þriðja við börn undir 12 ára aldri o. s. frv.“ Andstæða skallapoppsins er fram- sækið popp. Af gefnu tilefni skal tekið fram að skallapoppið er óháð aldri flytjendanna- Hljómsveitin Clash hefur sent frá sér þessar plötur: Clash I; Give’Em Eno- ugh Rope; London Calling (tvöföld)i Black Market; Sandinista (þreföld) og Combat Rock. Að auki mætti telja ptötu Ellenar Foley, Spirit of St. Louis, sjö- unda plötu Clash. Á þeirri plötu sja Clash nefnilega um útsetningaL hljóðfæraleik og að mestu um laga' smíðar. Bréf frá Vopnafirði Kæra Æska. Mig langar til að nefna dæmi om bækur í bókaklúbbinn. Mér finnst t. d- bækur eftir Enid Blyton og Astrid Lind- gren mjög góðar. Einnig eru Lassý' 48

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.