Æskan - 01.01.1986, Blaðsíða 17
53. Skömmu seinna kemur Björg heim. En
hún er ekki ein á ferð. — Vinkona mín er með
mér, Bjössi, segir hún. -Hún heitir Anna. -
Hæ, Bjössi, segir Anna brosandi. —Þú verður
að fyrirgefa mér að ég hagaði mér kjánalega í
dag. Bjössi snýr sér snöggt að henni. Ætli sé að
marka þetta?
55. Bjössi snæðir morgunverð í þungum
þönkum. Hann er ekki alveg horfinn frá því að
grenna sig og lætur vera að smyrja brauðið og
drekkur léttmjólk. Pabbi kemur alvarlegur á
svip. -í nótt var þjófurinn enn á ferð, segir
hann. -Grís var stolið frá prestsetrinu.
Texti: Ingvar Moe
Teikningar: Hákon Aasnes
54. Þau spila teningaspil um kvöldið og Anna
spyr hvernig honum gangi að leysa gátuna um
þjófnaðina. Bjössi hristir teningana lengi í lukt-
um lófum. -Þú hefur, vænti ég, ekki heyrt um
þann leynilögreglumann sem segir frá málavöxt-
um fyrr en allt er að fullu ljóst, segir hann
ábúðarmikill. Hann varpar teningunum með
tígulegri sveiflu og fær sex augu upp á öllum!
56. Bjössi lýkur málsverðinum í skyndi og
heldur af stað. Það varðar miklu að komast á
vettvang meðan sporin eru enn greinileg. Sem
betur fer er engan að sjá við bæ prestsins. Hann
læðist meðfram limgerðinu í átt að grísastíunni.
Já, það var sem hann hugði! Hér eru spor.