Æskan - 01.01.1986, Qupperneq 32
ÆSKUPÓSTURINN
Grátlegir brandarar
Kæra Æska.
Mig langaði til að senda þér tvo
brandara. Sá fyrri er svona:
Maðurinn: Hvers vegna grætur þú,
drengur minn?
Drengurinn: Við eigum að fá sæt-
súpu og pönnukökur í hádeginu.
Maðurinn: Er það svona slæmt?
Drengurinn: Já, ég rata ekki heim.
Konan: Af hverju græturðu svona,
drengur minn?
Drengurinn: Ég get ekki grátið öðru-
vísi.
Bless, bless,
Elín Björk Magnúsdóttir,
Hraunbæ 72,
110 Reykjavík
Draumaprins með
sólgleraugu
Kæri Æskupóstur.
Töffarinn okkar er meðalhár, vel
vaxinn og með hárið litað grænt.
Hann er burstaklipptur og gengur
oftast í rósóttum sokkabuxum og í
fjólubláum leðurjakka. Hann er með
sólgleraugu og tvö göt í nefinu,
appelsínugular varir, fjórar freknur á
nefinu, græn villimannsaugu og fegr-
unarblett á vinstri kinn. Við þekkj-
um hann vel!
Selma Guðmundsdóttir og
Helga Helena Sturlaugsdóttir
Ljóð um Duran Duran
Kæri Æskupóstur.
Ég vil byrja á því að þakka gott
blað. Ég finn ekkert að því. Hér eru
vísur um strákana í Duran Duran ef
þið vilduð birta þær.
John er allra sætastur,
alltaf hress og kátur.
Hann er mikið kvennagull,
stór og lítillátur.
Simon, hann er annar;
gengur í bláum brókum.
Að taka mynd hann bannar
en samt við eina tókum.
Andy er með fallegt hár
og stundum er það svart.
En verst hvað hann er voða
smár
og minnir á svo margt.
Roger spilar á trommur
og er aggalítið feiminn.
Af vöðvum hefur hann
glommu
utan um fínu beinin.
Nick er alveg ofsa góður.
Oft hann fer og syndir.
Hann er alltaf óður
í að taka myndir.
Með fyrirfram þökk
Dísa.
Bréf úr Bárðardal
Kæra Æska.
Ég ætla að segja þér frá bænum,
sem ég á heima á, og ýmsu fleiru. Ég
á heima á Eyjardalsá í Bárðardal. Ég
á nokkrar kindur. Þær heita Dalrós,
Grása og Budda. Ég á líka kú sem
heitir Búbót. Það er mjög gaman að
búa í sveitinni. Við eigum hesta. Þeir
heita Skjóni og Nasi. Það er mjög
skemmtilegt að fara í útreiðartúra.
Ég hef einu sinni orðið fyrir slysi í
sveitinni. Þegar ég var sjö ára var ég
að hjálpa til við að hirða hey. Ég
stóð uppi á heyvagninum og allt í
einu flaug ég út af honum og rak
olnbogann í járn á vagninum. Um
kvöldið fór ég á sjúkrahús og það
voru teknar myndir af hendinni. Ég
var sett í gifs en daginn eftir þurfti ég
að fara til Reykjavíkur og á sjúkra-
hús þar. Ég var þar í nokkra mánuði
og svo fór ég heim. Það var settur
nagli í handlegginn á mér og hann
var svo tekinn úr á Húsavík.
Ég vona að þetta verði birt,
Birna G. Baldursdóttir.
32