Æskan - 01.01.1986, Qupperneq 35
Ef ég mætti
stjórna
landinu
í eina uiku
(Úr skólaritgerðum í 5. bekk).
Fjórír litlir
grísir.
Einu sinni var gylta sem átti heima
á bæ sem hét Svínafell. Hún átti fjóra
grísi. A hverjum morgni taldi hún
grísina.
Einn morgun var hún að telja
börnin sín:
»1, 2, 3, 0, 0, Guð, ég er búin að
týna minnsta barninu mínu.“
„Vertu ekki að gráta, mamma
mfn,“ sagði sá elsti, „ég skal fara og
leita að litlu systur.“ Og hann fór af
stað.
Fyrst fór hann fram hjá stórum
hundi.
„Voff, voff,“ sagði hundurinn.
Grísinn var logandi hræddur við
hundinn og flýtti sér áfram. Næst
kom hann að belju sem sagði:
„Bö, bö.“ Hann var líka logandi
hræddur við beljuna og hljóp fram-
hjá henni. Næst kom hann að epla-
geymslu. Þá sagði hann við sjálfan
sig:
»Eg er svangur og verð að fá mér
ePli,“ og fór þangað inn.
Næsta morgun fór mamman aftur
að telja:
”E 2, 0, Guð, ég er búin að týna
tveirnur börnum.“
>,Vertu ekki að gráta, mamma
mín. Ég skal fara og leita,“ sagði sá
næst elsti og hélt af stað. Fyrst fór
ar>n framhjá stóra hundinum.
”Voff, voff“ sagði hundurinn og
grísinn var logandi hræddur og flýtti
Ser áfram.
Svo kom hann að beljunni og var
líka hræddur við hana. Síðan labbaði
hann upp á hólinn og fann þar einn
grís sofandi og vakti hann og sagði
honum að hjálpa sér við að finna litlu
systur. Þeir fóru niður að á og fundu
engan.
Þá gáfust þeir upp og fóru heim og
leituðu þar betur og fundu systurina
undir rúminu sínu. Árni. (4.b)
Dóra
í sueitinni
Einu sinni var stelpa. Hún hét Dóra.
Hún var að leika sér úti í garði. Þá
heyrði hún eitthvert hljóð nálgast.
Það heyrðist meir og meir. Allt í einu
sá hún kálf koma á fleygiferð niður
brekkuna. Hann kom beint til henn-
ar. Hún varð hrædd og hljóp alla
leiðina heim. Afi kom á móti henni
út á hlað. Hann spurði hvað væri að.
Hún sagði að kálfurinn væri að elta
sig. Afi sagði þá að kálfurinn væri
bara að leika sér. Sonja. (3.b.)
Ég jafnaði laun karla og kvenna
sem væru í sama starfi.
Ég léti safna peningum fyrir mat
handa hungruðum í Eþíópíu.
Ég léti líka halda nokkrar Duran
Duran og Wham hátíðir og sendi
gróðann til Eþíópíu. Svo reyndi ég
að bæta hjúkrunarstarf í landinu. Ég
reyndi að fá fleiri til að vinna á
sjúkrahúsum. Ég mundi líka hækka
laun á sjúkrahúsum.
Ég léti reyna að bæta fjárlaga-
gatið.
Ég hæfi útsendingar í sjónvarpinu
á fimmtudögum.
Ég bætti aðstöðu lamaðra og fatl-
aðra í landinu.
H.P.
Ég léti byggja skautahöll, stóra og
fallega, sem allir fengju frítt í.
Ég léti skattana lækka og leyfði
fólki að una sér. Fólk fengi að hjálpa
til að setja niður tré svo að brátt yrðu
komnir stórir og grænir skógar.
Ég léti skólann ekki vera svona
lengi á daginn og hefði hestafræði í
staðin fyrir stærðfræði. Ég léti bekk-
inn fara í göngutúra og mörgu má
bæta við. Ég hefði skólaskíðaferð á
mánaðarfresti.
Þá yrði landið ekki eins og það er
nú.
K.S.
Ég keypti allt sem ég vildi eiga. Ég
lækkaði verð.
Ég stútaði þessum Whamskrækj-
um og Kissgargi og Limalsropi og
Prins gorkúlu en leyfði Duran Duran
greyinu að lifa. E.H.H.
35