Æskan

Volume

Æskan - 01.07.1986, Page 14

Æskan - 01.07.1986, Page 14
Spjallað víð Dýrflnnu Sigurjónsdóftur ljósmóður ..IIvtT fæðing svo sérstök“ Ljósmœður hafa tekið á móti flestum börnum á íslandi. í íslensk- um fornsögum eru þær hvorki nefndar yfirsetukonur né Ijósmœð- ur. Pau heiti komu síðar. Konur, sem tóku á móti börnum, voru stundum nefndar þjónustukonur. í fornum norskum lögum voru þær nefndar bjargrígur. Yfirsetukona, nærkona eða náverukona eru Ijósmóðurheiti í gamalli bíblíuþýð- ingu sem talin er verafrá 13. öld. Starfsheitið Ijósmóðir kemur fyrst fyrir í Guðbrandsbíblíu 1584. Til að kynnast lítillega störfum ljós- móður tókum við Dýrfinnu Sigur- jónsdóttur tali en hún starfar á Fæðing- arheimili Reykjavíkur. Hún hefur tekið á móti börnum í 34 ár eða frá 1952. Þau eru hátt á annað þúsund. Hún hefur sem sé tekið á móti nærri því einu prósenti Islendinga. Við spurðum hana fyrst hvenær hún hefði ákveðið að gerast ljósmóðir. „Ég var aðeins 10 ára,“ svaraði Dýr- finna. „Ég man svo vel hvað ég var spennt þegar mamma var að fæða bræður mína og þegar ég var 11 ára vildi ég helst fá að fylgjast með fæð- ingu eins bróður míns. Þá var ég ekki lengur í vafa um að ég vildi verða ljósmóðir.“ - Hvað þykir þér skemmtilegast við starfið? „Það er varla hægt að lýsa því með orðum. Hver fæðing er svo sérstök og stórkostleg. Maður verður vitni að kraftaverki þegar nýr einstaklingur kemur í heiminn. Dásamlegasta til- finning í lífi konu er þegar hún hefur nýfætt barn sitt í höndunum." — Geturðu lýst starfi ljósmóður með nokkrum orðum? „Við byrjum að fylgjast með kon- unni fljótlega eftir að hún verður ólétt. Þá kemur hún í skoðun til lækna og ljósmæðra. Við mælum blóðþrýsting hennar, hlustum á hjartslátt barnsins og athugum hvort það liggur ekki eðli- lega. Konan kemur reglulega í skoðun á meðgöngutímanum. Við sitjum svo yfir henni þegar hún er orðin veik og komið að fæðingu. Fæðingin getur tek- ið allt frá 2 klukkustundum og upp í 25. Við gefum konunni deyfandi sprautu, nuddum húðina til að lina sársaukann ef þær vilja það og sinnum þeim að öðru leyti. Svo hjálpum við barninu að komast í heiminn þegar konan byrjar að rembast. Börnunum liggur misjafnlega mikið á. Stundum gengur allt eins og í sögu en svo getur fæðingin líka verið erfið og tekið langan tíma. Litlu eftir að barnið hefur litið dagsins ljós böðum við það og leggjum á brjóst mömmunnar. Næstu daga aðstoðum við mömmuna við að hugsa um barnið á meðan þau eru á Fæðingarheimilinu. Hún er alltaf mjög mikið eftir sig eftir fæðinguna og hvílist því hjá okkur í nokkra daga. Ef hún hefur ekki átt barn áður leiðbeinum við henni um meðferð. - í þessu felst starf ljós- móður í grófum dráttum.“ - Hvað er nám ljósmóður langt? „Það hefur mikið breyst frá því að ég var í skóla. Núna þurfa verðandi ljósmæður að Ijúka fyrst stúdents- prófi, síðan hjúkrunarfræðingsprófi í Háskólanum en það tekur 4 ár og eftir það fara þær í Ljósmæðraskólann. Hann er í 18 mánuði og námið er bæði bóklegt og verklegt." - Hvaða hæfileikum þarf góð ljós- móðir að vera gædd? „Hún þarf að vera rólynd og blíð. I starfinu er fengist við viðkvæm mál °8 það reynir talsvert á tilfinningar. Það er dálítið sárt að fæða börn og foreldr- ar hafa oft áhyggjur af þvf að fæðingm gangi ef til vill illa og barnið verði kannski ekki heilbrigt. Þess vegna þar ljósmóðirin að vera mjög nærgætin °g geta sett sig í spor foreldranna. Eft'r að barnið er fætt er allur sársauki kon- unnar rokinn út í veður og vind og ólýsanleg sæla komin í staðinn.“ Vemdarhendi yíir mér — Hefurðu aldrei orðið fyrir því a^ taka á móti andvana börnum eða van sköpuðum? „Nei, aldrei. Ég hef verið afskap lega lánssöm í starfi mínu. Mér finnst stundum eins og einhver haldi vern arhendi yfir mér; ég er aldrei ein þegar ég er að taka á móti börnunum. Lg finn alltaf fyrir ró og friði þegar mik1 mæðir á mér.“ — Þú segir að allar fæðingar seU sérstakar. Manstu samt ekki etrir neinni sem hefur verið frábrugð111 öðrum? „Jú, mér dettur helst í hug að netnU atvik sem kom fyrir mig fyrir árum. Þá var ég kölluð í heimahús 1 Fossvogi og það vildi svo einkennilog*1 til þetta kvöld að það var allt ra magnslaust í hverfinu. Eiginmaður konunnar, sem ég var að taka á m°ri hjá, kveikti þá á 20 kertum og raða 1 allt í kringum mig. Þetta var ákafle§a óvenjuleg og sérstök fæðing þarna innan um kertin." Svo man ég eftir annarri sérstakn fæðingu fyrir nokkrum árum. Tilv°n andi amma vildi fá að halda í

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.