Æskan - 01.07.1986, Page 44
Landsmót skáta
^ i, M m .jLm. i
|V Jf n *^^MÍ**t \
Viö varðeldinn eru raddböndin óspart þanin...
Eins og þaö sé eitthvað merkilegt að
nokkrir skátar frá fjórum landshorn-
um hírist úti í Viðey í eina viku...
Á þessa leið kunna einhverjir að
hugsa — en þó ekki þeir sem kynnst
hafa skátastarfi. Landsmót skáta eru
alltaf „meiriháttar“ og í Viðey voru
ekki aðeins samankomnir skátar frá
íslandi heldur var mótið sótt af skátum
frá 8 þjóðum, þ.á.m. frá Japan, Ástra-
líu og Bandaríkjunum.
Dagskráin var vel skipulögð. Félög-
um var skipt í flokka sem tóku síðan
þátt í flokkakeppni. Til þess að ljúka
henni þurfti að ráða við 7 af 8 verkefn-
um. Þau voru:
Borgardagur
Hike og ferðir
Frumbyggj asvæði
Lýðveldisleikar
Þrautabraut
Vatnasafarí
Út og suður
Flipp og metasvæði.
Skátar eru duglegir að reisa og reyra bjálka.
Ljósm.: H.G
Hvert verkefni skiptist í nokkrar
þrautir.
Það sem mér fannst skemmtilegast
var Vatnasafaríið. Það byrjaði með
því að gengið var yfir apabrú. Brú
þessi var úr þremur strengjum sem
strengdir voru yfir læk. Síðan átti að
sveifla sér yfir lækinn í kaðli (alveg
eins og Tarsan). Síðast hljóp maður
yfir hálf-flothelda planka (enginn er
verri þótt hann vökni!).
Við mótsslit voru þeim sem lu ^
keppni veittar viðurkenningar-
kvöldin voru varðeldar sem óli
skátum þykir gaman að sitja við 0
njóta samveru, söngs og leikja og S1
an var gott að fá kvöldkakóið fyrl
háttinn.
Skátastarf er að mínu áliti fjörug1
skemmtilegt og þess vegna ráðlegg
sem flestum að taka þátt í því.
Haraldur Guðjónsson
Já, þetta er blautt...
Ljósm.: H.G
44