Æskan

Árgangur

Æskan - 01.07.1986, Síða 53

Æskan - 01.07.1986, Síða 53
TÓNLISTAR- KYNNING Umsjón: Sigurrós Hilmarsdóttir 14 ára Dúettinn Eurythmics skipa þau Annie Lennox og Dave Stewart. Nýlega sendu þau frá sér plötuna Revenge og er hún nú með mest seldu plötunum innanlands sem utan. Þegar hefur eitt lag hlotið fádæma vinsældir en það heitir When Tomorrow Comes. Ég giska á að þau eigi eftir að verða fleiri. Mörg önnur lög með Eurythmics hafa náð hylli, svo sem: Would I Lie To You, 1984, There Must Be An Engel og Here Comes The Rain. Það síðastnefnda varð þannig til að Dave og Annie voru að rífast. Þá voru þau stödd á hóteli í New York og Dave vildi æfa sig aðeins á gítarinn en Annie vildi líka æfa þá stundina. Þannig hófst rifrildið. Dave bar sigur úr býtum og Annie fór í fýlu. Hún gekk út að gluggan- um og raulaði fyrir munni sér: Here Com- es The Rain — og þannig varð það ágæta lag til. Hérna koma svo nokkrar upplýsingar um Annie: Fæðingardagur: 25. desember 1954 Fæðingarstaður: Aberdeen í Skotlandi Augnlitur: Grænn Eftirlætis-litur: Rauðgulur Menntun: Stundaði nám við Konunglega tónlistarskólann í London Fyrsta hljómsveitin: The Tourists Eftirlætis-drykkur: Margrétar-hristingur Áhugamál: Hljómlist, dans og skemmti- legir strákar Eftirlætis-hljómsveit: The Fun Boy Three Eftirlætis-klæðnaður: Herraföt Ástarflækjur hafa tekið sinn tíma hjá Annie. Einu sinni var hún með Dave Stew- art en svo giftist hún þýskum náunga að nafni Radha Roman. Nú er hún skilin við hann og búin að eignast nýjan vin sem er líka í hljómsveit. Hann er kallaður Billy. Hvort elskhugarnir eiga eftir að verða fleiri veit enginn. Það getur allt gerst hjá þessum heimsfrægu poppstjörnum.

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.