Æskan - 01.02.1987, Side 47
Döggeygð draumadís
Kæra Æska.
Ég er dálítið óhress með það hvað
ynbræður mínir eru latir við að skrifa
P.er lýsingar á kærustunum sínum. Ég
með þessu bréfi skora á þá að bæta
Par úr. Þetta er ekkert mál strákar því
a þið megið birta bréfin undir dul-
nefni!
Til þess sýna ákveðið fordæmi er
,er ^sing á stelpunni minni. Hún er 12
ara og er í sama bekk og ég. Við erum
1 ehaskóla. Hún er dökkhærð og með
yndislega falleg dökkbrún augu. Hún
® lr djassballett og er góður dansari.
g hef farið á allar sýningar þar sem
ansflokkurinn hennar hefur komið
rarn- Stundum á ég erfitt með að
na á kvöldin fyrir hugsunum um
ana. Ég get ekki hugsað mér aðra
°nu í framtíðinni!
. fyrirfram þökk fyrir birt-
lriguna.
Nói (dulnefni)
fleiri unglingasögur
£e’’u ntstjórar Æskunnar!
langar til þess að skrifa ykkur
, I krar línur og þakka fyrir mjög gott
að- Það eina sem ég hef fundið að
essu blaði er að það mættu vera fleiri
nglingasögur í því og annað efni fyrir
nglinga. Bestu þættirnir í blaðinu að
lnum dómi eru Poppþátturinn,
skupósturinn og Okkar á milli. Þeir
ða mikið til okkar unglinganna.
°gurnar finnst mér hins vegar vera
rekar við hæfi yngri barna. Er ekki
ægt að bæta úr því?
mættuð gjarnan segja meira frá
rökkum úti á landsbyggðinni. Ég
an vel eftir því þegar ég átti heima í
^ afnarfirði að þá fannst mér alltaf
enimtilegast að lesa um krakka sem
eiga heima úti á landi og bera þá sam-
an við krakkana í bænum. Ef ykkur
antar efni héðan úr heimabæ mínum,
rundarfirði, megið þið hafa samband
við mig og ég skal ekki liggja á liði
mínu.
Með bestu kveðju,
Alma
Svar: Þakka þér fyrir bréfið, Alma. Við
teljum okkur hafa gert nokkra bragarbót
varðandi efni fyrir unglinga eftir að bréf
þitt var skrifað í desember sl. í síðasta
tölublaði Æskunnar og þessu nýjasta
eru unglingasögur og það sem meira er:
— Þœr eru skrifaðar af unglingunum
sjálfum. Við œtlum að halda áfram á
þessari sömu braut í nœstu blöðum.
Við þökkum orð þín um að vilja skrifa
okkurfréttir eða viðtöl úr Grundarfirði
og mátt vera viss um að við höfum
samband við þig fljótlega!
Draumaprinsar
Hæ, kæra Æska.
Ég er hér ein sem langar til að lýsa
draumaprinsinum mínum. Hann er
skolhærður með blá augu, á að giska
1.72 sm á hæð og herðabreiður. Hann
er grannur og mjög sætur. Hann er 14
ára og á heima í Njarðvík.
Eygló Kristjánsdóttir,
Arnarkletti 3,
310 Borgarnesi
Kæra Æska.
Draumaprinsinn minn er skolhærð-
ur og 167 sm á hæð. Hann er í 7. E.G.
í Réttarholtsskóla. Hann er mjög góð-
ur dansari og heitir Jói.
Ein úr Réttó
Kæra Æska.
Draumaprinsinn minn á heima í Sví-
þjóð. Hann er pennavinur minn. Ég
sendi nafn mitt til Kamaratposten,
stærsta barnablaðsins í Svíþjóð, í fyrra
og 10 krakkar skrifuðu mér. Ég valdi
þrjá úr þeim hópi, tvo stráka og eina
stelpu, og skrifa þeim enn. Strákarnir
sendu mér fljótlega myndir af sér og
ég varð strax skotin í öðrum þeirra.
Hann er líka mjög skemmtilegur. Við
erum orðin vinir og tölum um allt milli
himins og jarðar í bréfunum. Ég
hlakka alltaf til að fá bréf frá honum.
Fyrir síðustu jól tók ég þátt í verð-
launasamkeppni Æskunnar og Rásar 2
og vonaðist til að vinna ferð til Sví-
þjóðar svo að ég gæti kannski heimsótt
hann. Því miður vann ég ekki í þetta
sinn - en hver veit nema ég eigi samt
eftir að fara til Svíþjóðar áður en langt
um líður. Ég bíð ofsalega spennt!
Kær kveðja,
Kolbrún 13 ára
Þessir með bláa blóðið...
Kæra Æska !
Ég er tólf ára og langar til að lýsa
draumaprinsinum mínum. Hann er
æðislega sætur, brúneygður,með ljóst
hár, hvítar, beinar og fallegar tennur.
Hann er hljómborðsleikari í Greifun-
um og heitir Kristján Viðar Har-
aldsson...
Sigga
Hæ, hæ, Æskupóstur!
Draumaprinsinn minn er meðalhár
með brún augu (held ég). Hann er
með dökkt hár með ljósum strípum.
Hann er alveg æðislega sætur og ég er
alltaf að skoða myndir af honum frá
því hann var í Gaggó. Hann heitir Jón
Ingi Valdimarscon og leikur á bassa í
Greifunum.
Begga
47