Æskan - 01.03.1988, Blaðsíða 22
-
1
Æsku- ?
i póstunnn \
—Fleiri talnaþrautir—
og stafarugl
Ágæta Æska.
Ég vil byrja á því að þakka frábæra
límmiða sem ég fékk með tveim síð-
ustu blöðum. Æskan er mjög gott
blað - en það er bara eitt sem mér
finnst vera að. Ég vil fá fleiri talna-
þrautir og stafarugl.
Ég heiti Birna Guttormsdóttir og á
heima í Fögruhlíð í Hlíðarhreppi. Ég
hef aldrei áður skrifað Æskupóstin-
um en hins vegar hef ég sent svör við
þrautum og einu sinni unnið bók í
verðlaun. Ég safna límmiðum, munn-
þurrkum og frímerkjum; svo á ég
margar skemmtilegar veggmyndir.
Ég vona innilega að þetta bréf
verði birt. Síðan ætla ég að spyrja
einnar spurningar. Hvert er heimilis-
fangið hjá Grobba Grobbasyni? Að
lokum einn brandari:
Kennarinn: Pési, hvað eru heims-
álfurnar margar?
Pési: Þær eru sjö.
Kennarinn: Teldu þær upp.
Pési: Já, sjálfsagt. Ein, tvær, þrjár,
fjórar. .!
Bima 9 ára
Svar: Heimilisfang Grobba er:
Grobbi Grobbason,
Töfraglugganum, Sjónvarpinu,
Laugavegi 176, 121 Reykjavík.
Rauðahafið-
Hæ, hæ, frábæra Æska!
Ég ætla að senda þér brandara.
Hann er svona:
Kennslukonan: Palli, getur þú sýnt
mér hvar Rauðahafið er á kortinu?
Palli: Nei, það get ég ekki. Ég er
litblindur.
Frá Svanhildi Kristjánsdóttur,
10 ára,
Laugavöllum, 371 Búðardal.
—Má ég senda efni?—
Kæra Æska.
Ég hef verið áskrifandi að þér síðan
í desember 1985. Ég hef verið mjög
ánægð með öll blöðin sem ég hef
fengið. Ég tók við áskriftinni af bróð-
ur mínum sem nú er orðinn 21 árs.
Ástæðan fyrir þessu bréfi er sú að
mig langar til að spyrja þig hvort ég
megi skrifa litlar greinar í blaðið og
þá hvernig greinar? Ég er 9 ára en
verð 10 ára 25. september í haust. Ég
á heima á Seyðisfirði. Við erum ný-
búin að kaupa Hótel Snæfell. Það er
gott að búa hérna.
Með kærri kveðju.
Erla H.
Svar: Þakka þér, Erla, fyrir góð orð
til blaðsins. Þér er velkomið, eins
og öllum lesendum blaðsins, að
senda okkur greinar. Það mega vera
sögur, Ijóð eða greinar með fréttum
úr heimabyggð þess sem skrifar.
Okkur vantar alltaf fréttir utan af
landi í Æskupóstinn - og höfundar
þeirra mega vera vissir um að við
birtum þœr fljótlega. Hvemig vœri
að þú skrifaðir okkur fréttir frá
Seyðisfirði, segðir okkur t.d. frá
hvað jafnaldrar þínir hafa fyrir
stafni dags daglega? Hugsaðu mál-
ið!
Halló, kæri Æskupóstur!
Þegar ég sá að þú varst að lesa úr
skrift í nýlegu blaði datt mér í hug að
skrifa þér nokkrar línur og athuga
hvort þú gætir lesið úr skriftinni
minni. Ef þú gerir það, viltu þá birta
svarið í Æskupóstinum?
Bless.
Issa, 12 ára(dulnefni).
Svar:
Ur skriftinni lesum við að þú ert
metnaðargjöm, hefur mikið sjálfs-
traust og getur orðið ofurlítið þrjósk
ef þú ert ekki á sömu skoðun og aðr-
ir. Rithönd þín bendir til að þú sért
gcedd listrœnum hœfileikum.
-Kveðjur-
Hæ, hæ, frábæra Æska!
Ég er hér ein úr Mosfellsbæ. ðler
finnst Æskan alveg æðislegt blað °_|
hún mætti koma miklu oftar út. P*
mættuð gjarnan birta veggmyndir a
Madonnu, Whitney Houston og Los
Lobos (Úlfunum).
Að lokum vil ég senda kveðju 111
Bjarna, Kristjönu og Einars og v°nj
andi kemst rafmagnið fljótlega á h)a
þeim! Þau skilja setninguna. Stuð'
kveðjur til Sollu, Lindu og Fríðu
loks afmæliskveðja til Matta sem er
nýorðinn tveggja ára.
Bless, bless.
Dísa
—Pokahornið hætt?^
Kæra Æska.
Ég er mjög ánægð með blaðið einá
og það er þó að ég sé með tillögur uU1
efni í það. Mig langar til að spyr)a
ykkur tveggja spurninga:
1. Eruð þið hættir með pokahornio-
2. Getið þið birt veggmynd e^3
mynd af Patrick (Patreki) Swaýze
sem lék í myndinni Villtur dans (Dlf'
ty Dancing)?
Haldið áfram að láta límmiða fylgi3
blaðinu.
Með fyrirfram þökk fyrir birting'
una.
2276-1765
Svör:
1. Við höfum hvílt þáttinn um títúa
vegna þess að fáar sögur hafa boris1
í hann. Ef við fengjum nokkrOt
skemmtilegar sögur úr daglega »*/'
inu myndum við taka upp þráðirl,t
að nýju. Viltu kannski senda okkúT
eina?
2. Við getum það ekki í bráð þvi a
það er ekki enn farið að prenta slik'
ar myndir af honum erlendis. Hi,,s
vegar er möguleiki ef við höfum UþP
á góðri mynd að við birtum ha’,a
fljótlega.
æskaH