Æskan

Volume

Æskan - 01.03.1988, Page 24

Æskan - 01.03.1988, Page 24
Góð tamning - góður hestur eftir Guðrúnu Ásdísi Eysteinsdóttur 15 ára Ég kom í heiminn 16. júlí 1957. Það þyk- ir víst fremur seint á árinu en ég var allt- af stór eftir aldri. Það var heiðskírt og logn þegar mamma eignaðist mig. Ég var ekki nema örlítið farinn að geta staðið í fæturna þegar tvær manneskjur komu, Ástrún og Baldur, og fóru að skoða okk- ur mömmu. Ég var nú ckkert hrifinn en mamma virtist kunna vel við gælur þeirra. Nokkru eftir að ég varð sex vikna vor- um við tekin og flutt í aðra girðingu þar sem fjórar aðrar folaldshryssur og þrjú tryppi voru. Þá var nú gaman að vera til. Við söfnuðumst saman, ungviðið, og svo var tekinn sprettur. Þegar við folöldin reyndum með okkur var Lukkuláki, ljós hestur, alltaf fyrstur en ég annar. Ef tryppin voru með urðum við fjórði og ftmmti í röðinni því að þau þutu um eins og byssubrennd. Allt var þetta í gamni en það er nú svo að öllu gamni fylgir nokkur alvara. Einn daginn varð ég fyrstur í mark af folöldunum og eftir það var Lukkuláka illa við mig. Þar sem hann réð miklu í hópnum fékk hann hin folöldin og tryppin í lið með sér á móti mér. Það var aðeins jafnaldra mín, hún Móna Lísa, sem vildi leika sér við mig. Við urðum góðir vinir þetta sumar og höfum æ síðan verið það en við vorum sjaldan saman af því að ég var óvanaður. 24=— ____ Rétt um það leyti, sem ég var að verða sex mánaða, vorum við öll tekin og farið með okkur heim í hesthús. Þar vorum við folöldin, ég, Móna Lísa, Lukkuláki, Vordís og Kveðja, skilin eftir en mæður okkar fluttar burtu. Það var sama hvað við kölluðum, þær önsuðu okkur ekki einu sinni. Við urðum því að sætta okk- ur við að fá aðeins vatn og hey og fá ekki að sjá mæður okkar. Við vorum sex í húsinu. Auk okkar var Nökkvi þar, gamli hesturinn hans Baldurs. í hvert skipti sem Ástrún kom að gefa okkur varð hún að bíða meðan vatnstunnurnar voru að fvllast og á með- an gekk hún á röðina og kembdi okkur. í fyrstu vorum við ekkert ánægð með það en Nökkvi hughreysti okkur og við vöndumst kambnum smátt og smátt. Þegar líða tók á veturinn vorum við orð- in slétt og gljáandi í hárbragði. Svo fór hún að levfa okkur að hlaupa og leika okkur úti í snjónum en hún stóð við hús- vegginn og hló að okkur. Svona leið veturinn og um vorið vor- um við Lukkuláki settir í girðingu með eldri hestum en hryssurnar fóru eitthvað annað. Stundum kom Ástrún til okkar og þá alltaf fyrst til mín. Við heilsuð- umst með þeim hætti að fyrst tók hún í hægri framfótinn á mér og sagði: „Sæll og blessaður, Stjörnufákur minn,“ og kyssti mig á snoppuna. Síðan hlupum við samsíða nokkurn spöl ef vel lá á henni en stundum var hún eitthvað leið og þá settist hún bara niður hjá mer en ég reyndi að hugga hana með því að setja snoppuna í andlitið á henni kyssa hana. Þá brosti hún alltaf til niíi1 og svo hljóp hún með mér. Svona liðu árin hvert öðru skemmtilegra. Þegar við vorum orðin fjögurra vetra var byrjað að temja okkur. Það var Ást- rún sem sá um okkur Mónu Lísu en Baldur um hin. Ástrún gerði aldrei upp á milli okkar Mónu. Hún var mjög góð við okkur bæði. Það fyrsta sem við laerð- um var að hafa beisli og eta með það- Það var dálítið erfitt fyrst en vandist svo. Næst lærðum við að láta teymast. Þá reið Ástrún gjarna á Nökkva og við Móna hlupum hvort sínum megin við hann. Pa var komið að hnakknum. Hann þurftum við að bera og læra að hlaupa með. Það var afar skrýtið. Ég sá þegar Baldur setu hnakkinn á Lukkuláka í fyrsta skiptið- Lukkuláki varð alveg snarvitlaus, jós og prjónaði og lét öllum illum látum en auð- vitað losnaði hnakkurinn ekki. Á endan- um gafst Lukkuláki upp og stilltist. Þeg' ar kom að mér var ég bara stilltur og hljóp hringinn í kringum staurinn. Nokkrum dögum síðar settist Ástrún ' hnakkinn. Ég var dálítið óöruggur fyrst æskan

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.