Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1988, Síða 12

Æskan - 01.10.1988, Síða 12
Bjössi bolla, kappinn knái og kot- roskni, varð Jimmtugur í sumar. 30. júlí 1938 bar hann Jyrst Jyrir augu JræncLsystkina okkar í Noregi - í Norska barnablaðinu sem þá hajði reyndar verið gejið út íjimmtíu ár. Það er sannarlega við hæji að geta um stór- ajmæli þessa góðvinar okkar Æsku- Jólks. Bjössi ber aldurinn ekki utan á sér! Raunar hefur hann verið á að giska 12 ára um langa hríð. Og hann er sjálfum sér líkur jafnt hið ytra sem innra. Rauðu peysunni með svörtu doppunum hefur hann jafnan klæðst nema þegar þörf hef- ur verið á dulbúningi. Hann er þrekvax- inn og þurftarmikill, uppátækjasamur og ánægður með sig í meira lagi, ótrúlega heppinn, þó að hrakfallabálkur sé, og hittinn á bjargráð úr bráðum vanda - sem fáir hefðu komið sér í aðrir en hann. . . Bjössi hefur þó ekki alltaf verið sá sami. Framan af var hann fjögurra eða Bjössi bolla 1938: Meirí graut! 12 fimm ára, matgráðugur (það hefur lítið breyst) og meinstríðinn, uppstökkur óróabelgur sem þoldi auðvitað ekki stríðni sjálfur og auðvelt var að etja út í áflog. Fljótlega var hann kominn á níunda ár, róaðist, styrktist og stæltist og varð seinþreyttari til vandræða en fyrr. Nú er hann líkast til tólf ára, lífsreyndur vel eftir ótal ævintýri en lendir þó enn í klípu hvað eftir annað. Bjössi bolla er eins og aðrar sannar söguhetjur í teiknimyndaflokkum: Hann bætir ekki við sig árum - heldur vin- sældum og virðingu. Hann hefur glatt lesendur Æskunnar allt frá 1945 og birt- ist líka færeyskum börnum á síðum Barnablaðsins þar. Jens R. Nilssen teiknaði Bjössa 1938 til 1960, Solveig Muren Sanden sá um verkið 1960 til 1983 þegar Hákon Aasnes tók við. Hákon hefur samið söguna Skakkaföll á skíðum en margir hafa sagt frá Bjössa um árin, mest og lengst þó J°' hannes Farestveit. Bjössi nefnist Smorbukk á norsku- Það merkir „feitlaginn drengur; bolla • Færeyingar kalla hann Baldrian. Sagt hefur verið um Bjössa bollu aö hann sé sjálfumglaður vel og sjálfsörugg' ur, stundum sjálfhælinn en líka sjálfhæð- inn, sjálfkjörin sagnahetja á síður margr3 blaða. . . Við erum stoltir af að hafa haft þennan stórskemmtilega strák svo lengi í Æsk- unni. í fyrstu tölublöðum á þessu ári var hann ekki meðal efnis (filmur vantaði) og við fengum ótal kvartanir frá aðda- endum hans. . . Bjössi 1966: Alltaf á ferð og flugi - við misgóðar undirtektir. . . æskan

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.