Æskan - 01.10.1988, Side 27
Kannski einhverjum þætti gaman að
geta snúið augunum í allar áttir eða
breytt um lit eftir skapi og veðurfari.
Að ekki sé minnst á að reka tunguna
20 - 30 sentímetra út úr sér! En allt
þetta getur kameljónið.
Til eru margar tegundir kameljóna
en hér verður rætt um það evrópska
sem á heima í löndum við Miðjarðar-
haf. f>að telst til skriðdýra eins og
eðlur, slöngur og skjaldbökur sem öll
þurfa að hafa vel heitt á sér og geta
því ekki þrifíst á íslandi.
Evrópska kameljónið verður allt að
20 sentímetra langt. Hvort auga er
aðeins lítið op en allt í kringum það
eru samfastar, hreistraðar plötur.
Þrátt fyrir þetta hefur kameljónið
ágæta sjón og auk þess getur hvort
auga hreyfst óháð hinu, þannig að
hægra augað horfir til dæmis beint
fram en það vinstra til hliðar. Fæt-
urnir eru líka merkilegir því að tærn-
ar grípa hver á móti annarri svo að
dýrið á auðvelt með að halda sér á
trjágreinum.
Tungan er þó sennilega með því
skringilegasta við kameljónið. Hún
er álíka löng og skrokkurinn, öll
slímug og breiðust fremst. Þegar
kameljónið kemur auga á flugu, sem
því finnst mesta sælgæti, áætlar það
fjarlægðina að henni og rekur síðan
tunguna eldsnöggt út úr sér. Ef það
hittir, og það gerir það oftast nær,
festist flugan við slímugan tungu-
broddinn og kameljónið er þá ekki
seint á sér að draga hana til sín. Þeg-
ar tungan er ekki í notkun liggur hún
samanhringuð við neðra góm.
Kameljón hafa örsmá litkorn í
húðfrumunum sem sjá til þess að þau
geta skipt um lit eftir því sem við á.
Þau dökkna til dæmis ef þau eru í
æstu skapi.
Fimm
atriði
Myndirnar eru ólíkar íJimm atriðum. Sérðu hver þau eru? Svar á bls. 54
æskan
27