Æskan - 01.10.1988, Blaðsíða 32
Á förnum vegi í Vestmannaeyj-
um hitti Heimir Ijósmyndari Jé-
laga í Mtlu hjálparsveitinni“.
Þeir voru að æjingum í klifri og
sigi. í sveitinni eru 15-17 ára
skátar úr Skátajélaginu Faxa.
Þeir haja myndað ójormlegt Jé-
lag til að undirbúa sigjyrir þátt-
töku i hjálparsveitarstarfi og
kosið Gísla Sigmarsson Joringja.
Og við slógum á þráðinn til að
Jorvitnast. . .
Gísli, Valgerður Jónsdóttir og
Emilía Borgþórsdóttir fræða okk-
ur á því að skátastarf í Vest-
mannaeyjum hafi verið endur-
vakið 1985 eftir að hafa legið að
mestu niðri um hríð. En 22.
52
febrúar sl. voru fimmtíu ár liðin
frá stofnun Faxa og var þess
minnst með veglegu afmælis-
haldi. í félaginu eru nú um 150
skátar í fjórum sveitum. Hverri
sveit stjórna tveir foringjar og
þær skipa flokkar bæði drengja-
og kvenskáta. Félagið lagðist í
dvala þar sem húsnæði var bág-
borið og of fáir fengust til að axla
ábyrgð sem foringjar. Nú hefur
verið ráðin bót á hvoru tveggja og
fjörkippur færst í starfið.
Helgina 15.-16. október var
haldið flokksforingjanámskeið
undir stjórn Páls Zophóníassonar
félagsforingja. Þar var m.a. kennt
á áttavita og farið upp á nýja
hraunið og á Stafsnes til að reyna
á kunnáttuna.
Viku fyrr tók Faxi þátt í sam-
eiginlegu verkefni skáta um allt
land: Að safna ál- og plastdósum.
Félagar í Eyjum komu höndum
yfir 11.000 dósir!
Að sjálfsögðu hafa skátar í
Faxa farið „upp á land“ á skáta-
mót, m.a. á mót við Hafravatn.
Undanfarna vetur hefur verið far-
ið til skíðaiðkana í Bláfjöllum um
eina helgi.
Skátafélagið Faxi fær styrk til
starfsins frá Vestmannaeyjabæ og
félagar aíla fjár með ýmsum
hætti. Jólakort og skátaskeyti eru
seld og tímaritum dreift um bæ-
inn fyrir ýmsa útgefendur. Þeir
hafa líka tekið að sér verk, svo
sem að endurbæta gamla golfskál-
ann; þar voru teppi rifin upp og
vinnuparket lagt á.
„Litla hjálparsveitin" hefur æft
klifur og sig þegar vel hefur viðr-
að og tekist hefur að hóa nokkr-
um félaganna, sem eru rúmlega
20, saman. Eyþór Þórðarson
hjálparsveitarmaður hefur leið-
beint þeim. Að undanförnu hefur
ekki gefið til æfinga en þá helgi,
sem Heimir fór til Eyja, var ljóm-
andi gott veður. Félagarnir hafa
einnig fengið tilsögn í notkun
áttavita og hjálp í viðlögum.
Nokkrir þeirra hafa líka tekið
þátt í æfingum hjálparsveitarinn-
ar - sem „sjúklingar“ eða „slasað
fólk“ vel að merkja. . .!
Og þá er að heyra hvað Gísli,
Valgerður og Emilía hafa að segja
frá sjálfum sér. . .
SKátastarf og
fjarskipti
Gísli Sigmarsson er 17 ára og á
heima að Illugagötu 38. Hann er
foringi í sveitinni Litla gula hæn-
an - auk þess að vera í forystu
fyrir „Litlu hjálparsveitinni".
Hann hefur verið skáti frá því að
félagið var endurvakið 1985.
Gísli er við nám í Framhalds-
Gísli Sigmarsson
skólanum í Vestmannaeyjum, 1
grunndeild rafiðnaðar. Aðal-
áhugamál hans auk skátastarfsins
eru fjarskipti. Hann segir þó að
skilyrði séu ekki góð í Vest-
mannaeyjum til að ná sambandi
við áhugamenn vítt um ísland.
Hægt sé að ná um Suðurlands-
undirlendið, til Keflavíkur - °S
höfuðborgarinnar ef farið er upp
á fjöll.
Gísli er fæddur og uppalinn i
Vestmannaeyjum, er sannur
Eyjapeyi og vildi ekki eiga heitna
annars staðar. Hann varð þó að
láta sér lynda að dveljast með fot'
eldrum sínum um skamman tima
í Kópavogi á „gosárinu“ 1973. Þa
==æskam