Æskan - 01.10.1988, Síða 43
“*• »Tvívolí“ mcð Stuðmönnum. 1976.
****
»Götuskór“ með Spilverki þjóðanna.
1976. *****
»Sturla“ með Spilverki þjóðanna. 1977.
7; »Á bleikum náttkjólum" með Spilverl
bjóðanna og Megasi. 1977. *****
»ísland“ með Spilverki þjóðanna. 1971
*****
Bráðabirgðabúgí" með Spilverki þjóð-
anna. 1979. ***
10- »Punktur, punktur, komma, strik“.
Músík sem Valgeir samdi við samnefnda
kvikmynd, 1981. Flytjendur eru m.a.
Mike Pollock úr Utangarðsmönnum,
Cliddi fiðla, Þursaflokkurinn, Diddú, Vil-
hjáltnur Guðjónsson o.fl. ***
11- „Með allt á hreinu“ með Stuðmönn-
Ujn. 1982. ****
12. „Upp og niður“ með Jolla & Kóla.
1^83. Jolli & Kóla eru Valgeir og Sigurður
Bjóla. ****
13- „Grái fiðringurinn" með Stuðmönn-
um. 1983. ***
14. „Kókostré og hvítir mávar“ með
Stuðmönnum. 1984. ****
15- „í góðu geimi" með Stuðmönnum.
1985. ***
16- „Fugl dagsins". Lög Valgeirs við ljóð
lóhannesar úr Kötlum í flutningi Val-
8eirs, Diddúar og Ævars Kjartanssonar.
1985. *****
12- „Strax“ mcð útflutningsdeild Stuð-
^anna. 1987. ***
18- „Á gæsavciðum" með Stuðmönnum.
1987. ***
„Hægt og hljótt" með Valgeiri og
Höllu Margréti. Vinningslag Valgeirs á ís-
landi í söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva. 1987. ****
20. „Vopn og verjur“ með Bubba Morth-
ens, Valgciri og Varnöglunum. 1987. ***
Tvö síðasttöldu númerin eru ekki al-
vöruplötur, heldur stök lög. Þau eru hér
nvfnd í plötulista vcgna þess að þau voru í
nópi alvinsælustu laga ársin 1987, ásamt
nt-a. lagi Valgeirs, „Popplagi í G-dúr“.
„Það setur okkur skorður
að dveljast
langt frá höfuðborginni"
- segir Jón Arnarson,
gítarleikari sigurhljómsveitar MúsíKtilrauna '88, Jó-Jó frá SKagaströnd
„Því miður höfum við ekki getað nýtt okk-
ur sem skyldi sigurinn í Músíktilraunum ’88.
Það setur okkar ýmsar skorður að eiga heima
þetta langt frá höfuðborgarsvæðinu. Svo höf-
um við verið óheppnir með dansleiki hérna
fyrir norðan. Við höfum verið bókaðir sem
hljómsveit en síðan hefur Geirmundur Val-
týsson spilað í nálægu samkomuhúsi. Það er
vonlaust fyrir okkur að keppa við hann. Við
höfum nokkrum sinnum orðið að fella niður
dansleiki vegna þessa.“
Það er gítarleikari sveitarinnar Jó-Jó frá
Skagaströnd, Jón Arnarson, sem er svona
daufur í dálkinn. Hann mætti samt brosa yfir
ágætum árangri beggja laga Jó-Jó kvintettsins
á safnplötunni „Bongóblíða“. Þau heyrðust
oft í poppútvarpsstöðvum í sumar.
„Það er rétt,“ segir Jón og kætist. „Mig
minnir að annað lagið hafi komist í 4. sæti
vinsældalista Rásar 2 og hitt í 13. sætið. Þau
komust bæði inn á „10 efstu“ hjá Bylgjunni.
Ég man bara ekki nákvæmlega í hvaða sætum
þau lentu. Við náum aðeins ríkisútvarpsrás-
unum hér fyrir norðan.“
- Á hvernig músík hlusta norðlenskir
popparar þegar þeir hvíla sig á Rás 2?
„Ég hlusta á alla músík.“
- Líka ítalskar óperur, spunadjass og
þýskar sinfóníur?
„Nei, ég meina að ég hlusta á popp og svo
er ég mikið gefinn fyrir þungt rokk, White-
snake og svo framvegis."
- Einhverjir hafa áreiðanlega búist við því
að þið yrðuð meira á ferðinni fyrir sunnan en
raun varð á í sumar.
„Það er bara svo dýrt og mikil fyrirhöfn að
skjótast suður í rútu með allar „græjur“. Við
fengum ekki heldur svo góðar undirtektir hjá
gagnrýnendum fyrir sunnan. Þegar við spil-
uðum í Duus-húsi fengum við dembu yfir
okkur í Morgunblaðinu. Við vorum sagðir
vera með sveitalega músík og ættum ekkert
erindi suður. Það er auðvitað rétt að við höf-
um miðað lagaval okkar og flutning við
sveitaböll. En gagnrýnin var ekki uppörv-
andi.“
- Hvernig lítur framtíð Jó-Jó út?
„Hún er óljós. Við gerum ráð fyrir að eiga
eitt lag á safnplötu hjá Steinum hf. fyrir jól.
En að öðru leyti gerum við tæplega mikið
sem hljómsveit í vetur. Ingimar Oddsson
söngvari og Viggó Magnússon bassaleikari
eru í Reykjavík í vetur. Við hinir, ég og
trymbillinn, Kristján Blöndal, og hinn gít-
arleikarinn, Finnur Viggósson, erum hins
vegar fyrir norðan,“ segir Jón að lokum og
við skiljum mætavel að það eru ekki hin
bestu skilyrði fyrir rekstri á hljómsveit að
hafa liðsmenn hennar hvern á sínu lands-
horninu.
*SKANi