Æskan - 01.10.1988, Page 44
2. sæti. / Ljósm. Kristín H. Halldórsdóttir 13 ára. Falleg mynd. Kyrrð og fegurð Ijósaskiptanna njóta sín vel.
Æskumyndir
- verðlaunamyndir
4. sæti. / Sigrún Þorsteinsdóttir 11 ára.
Góð mynd, tekin á réttu andartaki. Það er likt og
músin sé innan seilingar. . .
Við lofuðum í síðasta tölublaði að birta einfaldar
leiðbeiningar fyrir áhugasama unga ljósmyndara.
Hér koma þær. Heimir Óskarsson, ljósmyndan
Æskunnar, tók saman.
Ef þú ætlar að taka þátt í ljósmyndasamkeppnl
skaltu byrja á því að gera þér grein fyrir því mynd-
efni sem beðið er um. Ekki er vænlegt að senda
mynd af fíl ef beðið er um fjölskyldumynd. • •
- svo að gróft dæmi sé tekið.
Það sem skiptir mestu máli í ljósmyndun er fyrst
og fremst rétt sjónarhorn og rétt notkun birtu. Til
að veita áhugasömum lesendum einhverja leiðsögn
þá skal þetta útskýrt örlítið. Þið megið senda okkur
myndir ef þið viljið reyna ykkur og við munurn
segja álit okkar á hvernig til hafi tekist.
Sjónarhorni ræður þú sjálf(ur). Dæmi: Ef þú aetl-
ar að taka mynd af einhverju þá getur þú valið þvl
stað á myndinni með því að hreyfa myndavélina,
ganga fjær myndefninu eða nær, til hliðar, krjúpa>
leggjast eða standa uppi á einhverju. Því meira seffl
þú leggur þig fram þeim mun skemmtilegri myndir-
f staðinn fyrir að smella bara af hugsunarlaust
skaltu velta fyrir þér hvernig myndefnið nýtur sin
best.
Varastu of skrautlegt umhverfi. Það er ágætis
regla að hafa aðalatriðið aldrei alveg í miðju nerna
nauðsynlegt sé. Reyndu að taka fimm ólíkar myndir
af einhverju frá mismunandi sjónarhornum. Notaðu
hugmyndaflugið og þá sérðu hvað ljósmyndarinn
getur ráðið miklu með breytilegu sjónarhorni.
Birtuskilyrði eru margs konar hér á Fróni. Það er
í raun kostur en ekki galli. Reyndu að nota birtuna
til að gefa myndum þínum ákveðinn blæ. Birta fra
glugga er mjúk og myndar eðlilegri skugga en birta
frá leifturljósi. Notaðu það því ekki að óþörfu-
Birtuskilyrði utan dyra eru best rétt eftir sólarupP'
rás og rétt fyrir sólsetur.
Margt íleira mætti nefna en okkur þótti rétt að
fara ekki of mörgum orðum um efnið svo að það
yrði ekki of flókið. . .
44
æskah