Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1988, Síða 46

Æskan - 01.10.1988, Síða 46
5sí1fTurn' fr*ðátburai Saga mannkynsins er löng og flókin. Sagnfræðingar fást við að útskýra liðna atburði. Þeir styðjast við bækur, skjöl og fornar áletranir. Sumir sagnfræðingar skrifa um atvik og samskipti manna fyrf á þessari öld en aðrir um þjóðir í grárri forneskju eins og komist er að orði um löngu liðna tíma. Heródótes skrifar ýmislegt um Sfinxinn mikla (þá þegar meira en 2000 ára) eftir egypskum leiðsögumanni sínum. 7 Sagnfræðin er raunar gömul vísinda- grein því að Forn-Grikkir sömdu sagn- fræðirit fyrir meira en tvö þúsund árum. Frægasti sagnfræðingur Forn-Grikkja hét Heródótus en hann naut þess að ferðast um lönd og fór víða. Hann dvald- ist með fjarlægum þjóðum og forvitnað- ist um hagi manna. Heródótus spurði margs og lagði á minnið því að einn góðan veðurdag setl' aði hann að lýsa því sem fyrir hann hefði borið þessi viðburðaríku ár. Hann gerði sér grein fyrir því að hann hefði augum litið margt sem hvorki Grikkir né aðrar þjóðir höfðu vitað mikið um til þessa. Þjóðirnar höfðu að mestu verið „hver í sínu horni“ og þrátt fyrir verslunarferðir kaupmanna og herferðir árásarherja vissu menn frekar lítið um siði og sögu annarra þjóða við Miðjarðarhaf. Til allrar hamingu lét Heródótus verða af því að skrifa rit sitt og lýsir hann þar ólíkum háttum manna. Samtíma- mönnum hans fannst ganga lygi naest hve fólk hagaði sér undarlega í sumum löndum og þveröfugt við það sem þeim þótti góðir mannasiðir. En Heródótes kvaðst ekki fara með neinar ýkjur og sagði óiíka siði þjóða aðallega stafa af ólíkri fortíð og hefðum sem ríkt hefðu hjá þeim í langan tíma. Siðirnir, og þar með taldir siðir Grikkja sjálfra, væru þvl ekki endilega óbreytanleg, guðleg lög' mál. Þessi ályktun er ein elsta niðurstaða sagnfræðings. Hann hefur viðað að sér upplýsingum um nútíma sinn og fortíð gestgjafa sinna eins og kostur var og kemst að niðurstöðu sem erfítt hefði ver- ið að komast að á sannfærandi hátt án upplýsinganna, þ.e.a.s. án alls þess fróð- leiks sem sagnfræðingurinn hafði aflað á ferðum sínum í mörg ár. Heródótus heimsótti Egyptaland á að giska 450 f.Kr. (= 450 árum fyrir fæð- ingu Jesú Krists - árið núll!) Þá þegar var Egyptaland fornt menningarríki og glæsilegar byggingar gnæfðu við himin- Margar þeirra voru meira en tvö þúsund ára þegar gríski sagnfræðingurinn fór um landið og skráði hjá sér það sem hann sá og heyrði. Enn þann dag í dag fÆSKAH

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.