Æskan - 01.01.1991, Qupperneq 54
Ummsjón; Nanna Kolbrún Sigurðardóttir félagsráðgjof
Ný og ný
vandamál
Hæ, hæ, Nanna Kolbrún!
Fyrst af öllu langar mig
til aö þakka þér fyrir.
Þannig var að mamma og
pahbi leyfðu mér ekkert.
Ég þurfti aö koma heim
klukkan 10, mátti ekki
vera úti heldur bara hjá
vinkonum mínum á kvöld-
in og allt eftir því. Svo sá
ég bréf í Æskuvanda og
þar átti stelpa við svipað
vandamál að stríða. Henni
var sagt að ræða við for-
eldra sína. Ég gerði það.
Þú mátt trúa að það var
ekki auðvelt. En núna má ég
miklu meira. Innilegar þákkir.
Vandamál mitt er að það
er strákur í skólanum sem
er hrifinn af mér. Ég er
oft búin að segja honum að
ég sé hrifin af öðrum en
hann lætur mig ekki í
friði. Hann er mjög sætur
en svakalega leiðinlegur og
ég þoli hann ekki. Hann
eltir mig út rnn allt og er
alltaf að spyrja hvort ég
vilji byrja að vera með sér.
Ég er alveg að verða brjál-
uð. Margar stelpur eru
hrifnar af honum en ég
hef engan áhuga.
Svo er það að ég er svo-
lítið feimin. Venjulega er
ég ekki feimin við krakka
en ég er hræðilega feimin
við kennara. Ef ég er
spurð um eitthvað sem
ekki tengist náminu í skól-
anum fer ég alveg í klessu
og roðna og roðna og styn
upp einhverri vitleysu.
Viltu birta þetta því að
ég er orðiri brjáluð á hvoru
tveggja. Vonandi er rusla-
tunnan södd en ritvélin
svöng í þetta skipti.
Eitt enn. Mig langar al-
veg ofsalega til að leika í
kvikmynd eða á sviði. Ég
er í leiklistarklúbbi í skól-
anum mínum, og hef mik-
inn áhuga. Ég ímynda mér
alla skapaða hluti, stund-
inn að ég sá að leika í
kvikmynd og margt annað.
Nú hætti ég þessu xmgli.
Heill vandamálakassi!
Svar:
Það var ánægjulegt að heyra að
þú gast notfært þér svar í þættinum
til þess að þoka málum þínum á-
leiðis heima fyrir. Það er einmitt á
þennan hátt sem við vonum að þið
lesendur getið notað bréfin og
svörin sem birtast. Mörg vandamál
eru áþekk og ekki er gerlegt að
birta öll bréf sem berast. Með því
að sjá það sem er líkt hjá sjálfum
sér og öðrum er stórt skref stigið í
átt að skilningi á sjálfum sér. Með
skilningi skapast möguleikar til
breytinga. Þannig má segja að með
því að skrifa og deila vangaveltum
ykkar með öðrum þá hjálpið þið
lesendur hver öðrum að átta ykkur
betur á tilverunni.
Það virðist eins og tilraunir þín-
ar til þess aó stugga drengnum frá
þér hafi öfug áhrif. Gæti verið að
þú sendir honum tvöföld skilaboó?
Margar stelpur eiga oft erfitt með
að vera ákveðnar og tjá það sem
þær vilja tjá. Þá fylgir ef til vill bros
eða góðlátlegt augnaráð athuga-
semd sem á að setja mörk og sýna
ákveðni. Kannaðu eigin vióbrögð
með tilliti til þessa.
Þetta með feimnina tengist trú-
lega einhverju almennu öryggis-
leysi gagnvart fullorðnum. Ég held
að þú hafir mjög auðugt ímyndun-
arafl og látir þig oft dreyma um að
raunveruleikinn líti öðruvísi út en
hann gerir. Ef mikið misræmi er á
milli dagdrauma og raunveruleik-
ans getur það skapað visst öryggis-
leysi.
Annars virðist mér sem þetta sé
allt á góðum nótum hjá þér. Þú
færð áreiðanlega mikla útrás í leik-
listinni. Haltu því áfram. Ég held að
feimnin eigi eftir að hverfa í takt
við aukinn þroska og innra öryggi
samhliða honum.
Skriftin er snyrtileg en óöruggari
í seinni hluta bréfsins.
FjölskylduvandÍ
Kæra Nanna Kolbrún!
Ég er 13 ára og á í mikl-
um vanda. Þegar þetta er
skrlfað voru mamma og
systir mín ný búnar að ríf-
ast heiftarlega. Svo kom
pabbi heim og ég og
mamma vorum grátandi
vegna þess að systir mín
lamdi mig. Mömmu sárn-
aði svo mjög þegar pabbi
þurfti að fara aftur í vinn-
una að hún er að hugsa
um að skilja við hann. Hún
hlýtur að meina þetta af
því að hún sagði þetta við
bróður sinn sem hún segir
nú ekki margt við. Þetta er
versti tíminn til að velta
fyrir sér skilnaði, rétt fyr-
ir jól og svo á ég að ferm-
ast í vor.
Kæra Nanna, gefðu mér
einhver ráð til þess að
komast yfir þetta. Ég verð.
Ég.
Svar:
Nú er komió nýtf ár og sá vandi,
sem þú lýsir, ef til vill að baki. Oft
er það þannig að desember er erf-
iður mánuður á mörgum heimilum.
Það eru svo margar væntingar
bundnar við jólin og því koma oft
upp vonbrigði þegar eitthvað fer á
annan veg en ætlað var. Þá getur
hvert lítið atvik oróið að stórmáli.
Allir á heimilinu verða argir og
hugsa ef til vill um þaó eitt að kom-
ast burt frá erfiðum aóstæðum. Það
gæti verið að eitthvaó slíkt hafi
verið á feróinni hjá ykkur.
Það er hins vegar alveg rétt hjá þér
að jólin eru ekki rétti tíminn til
þess að hugsa til skilnaðar. Þaó
sama á vió um önnur tímamót í lífi
barna eins og t.d. fermingar.
Flestum börnum finnst mjög erfitt
að hugsa sér skilnaó foreldra sinna
og þannig má kannski segja að
sjaldan sé um réttan tíma að ræða í
þeim efnum. Stundum er skilnaður
foreldra óumflýjanlegur, t.d. þegar
tilfinningakuldi er kominn upp á
milli pabba og mömmu og þau eru
óhamingjusöm í samskiptum sín-
um. Slík samskipti geta haft verri á-
hrif á tilfinningalíf barna en skiln-
aður.
Börn verða að hafa í huga að skiln-
aður foreldranna er ekki þeim að
kenna og að foreldrar skilja ekki
við börnin sín þó að þeir skilji við
makann. Pabbi og mamma verða
alltaf foreldrarnir hvort sem þau
eru á heimilinu eða ekki. Þessu er
ekki hægt að breyta. Samskiptin
geta breyst við skilnað og nýir
uppalendur komið til skjalanna en
þaó breytir ekki staðreyndum lífs-
ins.
58 Æskan