Æskan - 01.03.1992, Side 13
KEPPNIUM
FRUMLEGASTA OG
FALLEGASTA UMSLAGID
Enn ein keppni afmælisbarnsins; Æskunnar! Hún verð-
ur 95 ára í haust - en á henni eru engin ellimörk. Hún efn-
ir nú til nýstárlegrar keppni:
Sá sem sendir okkur frumlegt eða fallegt umslag
getur átt von á góðum glaðningi!
Sá sem reynist frumlegastur fær Redstone „Crazy-
boy“-sjónvarpsleikjatölvu með 23 leikjum - frá Tölvu-
landi hf., verslun í Borgarkringlunni.
Fimm sendendur fá að launum - hver -
þrjár hljómplötur/snældur frá Steinum hf.
(með Sálinni - eða Stjórninni, Todmobile, Nýrri
danskri, Bubba og Rúnari, Karli Örvarssyni, Mezzoforte,
K.K., Eyjólfi Kristjánssyni)
þrjár bækurÆskunnar
þrjú myndbönd frá Bergvík hf. (Tinna- og/eða knatt-
spyrnumyndir)
Allir þátttakendur fá viðurkenningarskjal.
Tilvalið er að setja í umslagið lausnir á þrautum, beiðni
um að nafn verði birt í pennavina- eða safnaradálkum, eða
bréf til Æskupósts - og slá þannig tvær flugur í einu
höggi.
Umslögin geta verið af ýmsu tagi. IMota má venjulegt
umslag og mála á það mynd - eða auka við það með
einhverju efni. Líka má búa til umslag - úr pappír eða
GEFIÐ
HUGMYNDAFLUGINU VÆNGI!
Eina skilyrðið er að letra póstfang Æsk-
unnar á umslagið og gleyma ekki að geta
um nafn, heimilisfang og aldur.
Póstfangið er:
Æskan, pósthólf 523,
121 Reykjavík.
HEIL A HUFI!
I tilefni 95 ára
afmælisÆskunn-
ar 5. október nk.
verður í næstu
tölublöðum get-
raun með glæsi-
legum verðlaun-
um. Hún tengist
ýmsum stuttum
fræðsluþáttum.
Tilgangurinn er að minna á hve miklu við getum ráðið sjálf um heill okk-
ar og heilbrigði með því að gæta okkar vel. Það gerum við með því
-að fara varlega - í umferð og nánast hvar og hvenær sem er -
-að hafna ýmsu óþörfu og óhollu
-en velja það sem eykur líkur á heilbrigðu lífi.
Auðvitað verður ekki við öllu séð. En við getum ráðið miklu með
réttu vali.
Æskan hefur frá upphafi göngu sinnar vakið athygli á þessu á margan
hátt til að lesendur hennar mættu lifa vel og lengi: HEILIR Á HÚFI.
Til samstarfs við Æskuna og útgefanda hennar, Stórstúku íslands, hafa
gengið nokkur félög og stofnanir sem einnig hafa lagt mikið af mörkum í
þessu skyni. Það eru Áfengisvarnaráð, Krabbameinsfélag íslands, Manneld-
isráð, Rauði krossinn, Slysavarnafélag íslands og Umferðarráð.
Þessir aðiljar munu sjá um stutta fræðsluþætti í Æskunni.
VERÐLAUN
TENGJAST
HEILBRIGÐUM
LIFSHATTUM
Verðlaun fyrir rétt
svör verða af ýmsu
tagi - en tengjast öll
hollustu og heilbrigð-
um lífsháttum. Sþurn-
ingar verða í hverju
tölublaði til áramóta-
úr efni þess (ef til vill
áfleiri en einum stað í
blaðinu) - og þrír hljóta verðlaun fyrir rétt svör í hvert sinn.
Aðalverðlaun fyrir fyrsta hluta getraunarinnar er Jazz-fjallahjól frá Trek
- af þeirri gerð sem hentar vinningshafa. Tvenn aukaverðlaun eru íþrótta-
búningar.
FYRSTI HLUTI
GETRAUNARINNAR, HEIL Á HÚFI!
1. Hvenær fóru rannsóknir að sýna samband milli tóbaksreykinga og
ýmissa hættuiegra sjúkdóma?
2. Af hverju eiga flestir, sem byrja að reykja tóbak, erfitt með að hætta
því?
3. Hver gefur heilræði í þessu tölublaði og segir:
„Byrjið aldrei að reykja!“
Svör skal senda til Æskunnar, pósthólf 523,121
Umslagið verður að leggja í Reykjavík - merkt: Heil á húfi - fyrir 30. aprfl nk.
póst fyrir 17. maf nk.
Æ S K A N 7 3