Æskan - 01.03.1992, Page 36
Birna Hadda Ómarsdóttir og
Pétur Róbert Tryggvason, bæði 14 ára:
Heimili:
Pétur: Rútsstaðir II í Eyjafjarðar-
sveit, 25 km frá Akureyri. Ég hef átt
heima þaralla ævi.
Birna (bróðurdóttir Péturs): Ég á
hins vegar heima á Akureyri. Þegar
ég var lítil átti ég heima á Höfn í
Hornafirði og í Keflavik en á Akur-
eyri hef ég átt heima lengst af.
Skóli:
Pétur: Hrafnagilsskóli.
Birna: Síðuskóli.
Skemmtilegast að læra:
Pétur: Leikfimi, sund og danska.
Birna: Get ekki svarað.
En leiðinlegast:
Pétur: Enska.
Birna: Samfélagsfræði og eðlis-
fræði.
Áhugamál:
Pétur: Knattspyrna og aka um á
skellinöðrunni minni.
Birna: Að vera á skíðum og skaut-
um - og synda.
Starf í fyrrasumar:
Pétur: Ég vann í hænsnabúinu
Fjöreggi. Starf mitt fólst í því að
ganga í húsin og tína upp dauða
kjúklinga. Alltaf tróðust einhverjir
þeirra undir og dóu. Ég mokaði líka
skít út úr húsunum, sótthreinsaði
þau og bar kalk á veggi - ásamt
ýmsu öðru sem til féll. í fyrstunni
vann ég við að aflífa fuglana en skipti
sem betur fór fljótlega um verksvið.
Birna: Ég vann líka hjá Fjöreggi
ásamt Pétri. Ég var mest í sláturhús-
inu, ekki þó við slátrunina sjálfa held-
ur var ég við færibandið, eins og það
er kallað, pakkaði kjúklingunum inn
og svoleiðis. Ég vann einnig við að
flokka eggin og lýsa þau til að leita
að fúleggjum. Mér líkaði starfið vel.
Draumar um framtíðarstörf:
Pétur: Að verða atvinnuflug-
maður.
Birna: Mig langar til að verða
snyrtifræðingur eða hárgreiðslu-
meistari.
Áhugaverðast í fari
hins kynsins:
Pétur: Margir strákar leggja mest
upp úr útliti stelpna. En þær mega
að mínu viti ekki vera alveg tómar í
kollinum. Þær verða t.d. að vera
skemmtilegar. Stelpurnar minnka í
áliti hjá mér þegar ég veit að þær
drekka eða reykja.
Birna: Númer eitt, tvö og þrjú er
að strákarnirséu skemmtilegir. Út-
lit þeirra skiptir mig minna máli.
- E.l.
Frændsystkinin Pétur fíóbert Tryggvason og Birna Hadda Ómarsdóttir.
4 0 Æ S K A N