Æskan - 01.03.1992, Page 40
Daninn Lars Ulrich er besti
trommuleikari dægurlagaheimsins
aö mati lesenda Rolling Stone.
Hljómsveitin hans, Metallica, er á
sama vettvangi kosin besta þunga-
rokkssveitin.
GUNS N’ ROSES
OG METALLICA
Þungarokkssveitirnar Guns N’
Roses og Metallica koma næstar
R.E.M. að vinsældum. Fyrrnefnda
sveitin er næst „besta hljómsveit-
in,“ næst „besti skemmtikrafturinn”
með næst bestu plötuna (Use Your
lllusion).
G.N’R. lenda reyndar einnig I
þeirri stöðu aö vera kosnir „versta
hljómsveitin” með „verstu plötuna”
og „verstu hljómleikana.”
Metallica er kosin „besta þung-
arokkssveitin" (G.N’R í öðru sæti)
en því þriöja sem „besta almenna
hljómsveitin,” og „besti skemmti-
Bandaríska gítar-nýrokksveitin R.E.M. er virtasta og vinsælasta hljóm
sveit heims um þessar mundir.
R.E.M.
Bandaríska gítar-nýrokksveitin
R.E.M. er sigurvegari vinsælda-
valsins. R.E.M. er kosin „Skemmti-
kraftur ársins 1992,“„Besta hljóm-
sveitin11 með „bestu plötuna” og
„besta lagið“ (Loosing My
Religion). Að auki er söngvari
R.E.M., Michael Stipe, kosinn
„besti söngvasmiðurinn” og „besti
söngvarinn.”
krafturinn," með þriðju bestu plöt-
una og þriðja besta lagið („Enter
Sandman”). Lagið „(Everything 1
Do) I do It For You“ með Bryan Ad-
ams er í öðru sæti. Auk þess er
Metallicu-forsprakkinn, hinn danski
Lars Ulrich kosinn heimsins besti
trommuleikari.
Besti bassaleikarinn er kosinn
Flea (úr Red Hot Chili Peppers),
besti gítarleikarinn er Eddie Van
Halen og besti hljómborðsleikar-
inn Elton John.
NIRVANA OG PUBLIC
ENEMY
Besta nýliðasveitin er þrumu-
rokksveitin Nirvana. Besta rabb-
fyrirbærið er hljómsveitin Public
Enemy. Besta söngkonan er Mari-
ah Carey.
Hátt í 60 gagnrýnendur Rolling
Stone blaðsins gerðu sérlista eftir
sínum smekk. Þar var niðurstað-
an nánast samhljóða lesendum.
Þó telja gagnrýnendur Skid Row
vera verri hljómsveit en G.N.’R. en
skosku sveitaslagarasöngkonuna
Bonnie Raitt betri söngkonu en
Maríu Carey og þeir velja írska
söngvarann Van Morrison besta
söngvarann.
VISSIR ÞÚ AÐ ...??
...í síðasta þætti var sagt frá því
að plötur Bubba og Todmobiles
hafi selst best íslenskra platna eft-
ir síðustu áramót. Við þá frásögn
má bæta að plata Sálarinnar hans
Jóns míns hefur einnig selst vel.
Þegar þetta er skrifað hafa um 11
þúsund eintök selst af henni.
...Hljómsveitirnar Stjórnin og
Rokkhljómsveit íslands hafa skipt
á gítarleikurum ...
...Nýr gítarleikari Stjórnarinnar,
Friðrik Karlsson, greip gamlan
meðspilara sinn með yfir í Stjórn-
ina. Sá heitir Jóhann Ásmundsson
og leikur á bassagítar. Friðrik og
Jóhann eru kunnastir fyrir að hafa
leitt heimsfrægu djassrokksveitina
Mezzoforte. Gárungar kalla þessa
nýju liðskipan Stjórnarinnar gælu-
nafninu Mezzo-stjórnina ...
...Sykurmolarnir hafa endur-
heimt fyrri vinsældir á alþjóðamark-
aðnum, jafnvel gott betur. Sam-
kvæmt ensku poppblöðunum náði
nýja Sykurmola-platan 12. sæti
breska breiðskífulistans (16. sæti
BBC-listans sem er talinn áreiðan-
legri). Lag Sykurmolanna, „Hit“, fór
í efsta sæti „Óháða listans” í Bret-
landi og „Nýrokklistans” í Banda-
ríkjum Norður-Ameríku ...
...Bjössi, söngvari rokksveitar-
innar Rutar, er sonur Baldvins
Jónssonar, eiganda Aðalstöðvar-
innar...
...Ari Eldon, bassaleikari Rut-
ar, er bróðir Þórs Eldons gítarleik-
ara Sykurmolanna ...
4 4 Æ S K A N