Æskan

Árgangur

Æskan - 01.06.1992, Síða 8

Æskan - 01.06.1992, Síða 8
MAÐURVERÐUR BASA AÐ KOMA SER A FRAMFÆRl... Rætt viö yngsta formann íþróttafélags á landinu, Önnu Guðrúnu Sigurðardóttur 16 ára. Hún heitir Anna Guörún Sigurðardóttir og er 16 ára nemi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hún hefur gengið við hækjur alla ævi en það hefur ekki aftrað henni frá því að keppa af fullum krafti í sundi, borðtennis og boltaleiknum „boccia". Hún er einnig yngsti formaður íþróttafélags á íslandi. Viðtal: Elísabet Elín Þetta íþróttafélag var stofnað í október síðastliðnum og Anna Guðrún hefur gegnt formannsembætti frá upphafi. Hún hefur keppt erlendis í sundi og borð- tennis fyrir íslands hönd og hún hef- ur keppt innanlands fyrir hönd fé- lagsins sem hún gegnirformennsku í. Hún hefur staðið sig glæsilega á öll- um mótum sem hún hefurtekið þátt í og fannst Æskunni því tilvalið að taka hana tali. Ég byrjaði á að spyrja hana hvernig íþrótt „boccia" væri. „Það er boltaíþrótt. í því keppa tvö lið, annað með rauða bolta og hitt með bláa. Svo er hvítri kúlu hent í miðju vallarins og liðin eiga að kasta boltum sínum sem næst hvítu kúlunni. Það lið, sem færflesta bolta sem nálægast hvítu kúlunni, vinn- ur.“ (í greininni verður orðið „bolta- leikurinn" notað þegar rætt er um „þoccia“ (framburður: bodsía-orð- ið er af ítölskum uppruna)) „Ég ták ekki mik- inn þátt í félags- lífi áður en það hetur breyst. Eftir að félagið var stofnað hefég verið miklu meira með ófötluðum krökkum. “ Ljésmyndirá bls. 8-9: Odd Stefán FEIMNIN HEFUR MINNKAÐ Segðu mér frá íþróttafá- laginu. Hvað heitir það? „Það heitir íþróttafélagið Nes. Það eru ekki margir félagar í því enn sem komið er. Við erum innan við tutt- ugu en við vonum að það rætist úr því!“ - Hefur það aftrað þér í dag- legu Iffi að vera bundin við hækjur? 8 æ s K A N

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.