Æskan - 01.06.1992, Blaðsíða 12
BARNABÓKAVERÐLAUN
Ahverju ári eru veitt nokkur
verðlaun fyrir barnabækur.
Við höldum þeirri venju að
segja frá þeim.
Skólamálaráð Reykjavíkur verð-
launar fyrir frumsamda bók og þýð-
ingu. Nefnd á vegum ráðsins (skóla-
safnanefnd) velur bækurnar úr þeim
sem komu út árið á undan verð-
launaveitingunni.
Að þessu sinni hlaut Magnea frá
Kleifum verðlaun fyrir bókina Sossu
sólskinsbarn.
Sólveig Brynja Grétarsdóttir fékk
verðlaun fyrir þýðingu bókarinnar
Flóttans frá víkingunum eftir Torill
Thorstad Hauger.
Útgefandi beggja bókanna er Mál
og menning.
í ár þótti tilefni til að veita sér-
staka viðurkenningu fyrir Ijóðabók
Þórarins Eldjárns, Óðfluga, sem er
myndskreytt af Sigrúnu Eldjárn. Út-
gefandi er Forlagið.
Skólasafnanefnd lýsir bókunum
þannig (stytt):
SOSSA SÓLSKINSBARN
„Sagan greinir frá gleði og sorg-
um stórrar fjölskyldu á íslandi
snemmaá öldinni.
í kollinum á Sossu er tryllt fram-
leiðsla af skemmtilegum hugsunum.
Hún er mikil manneskja, full af til-
finningum. Henni finnst yfirleitt feyki-
lega gaman að vera til - og þá á hún
það til að syngja. Krakkarnir segja
að hún sé laglaus en henni er alveg
sama um það. Hún syngur samt!“
FLÓTTINN FRÁ VÍKING-
UNUM
„Sagan gerist á víkingaöld en
sögusviðið er að mestu leyti ísland.
Hér hefur verið gefin út afar læsi-
leg bók sem varpar skemmtilegu
Ijósi á löngu liðna tíma. Hún ætti
jafnframt að vera auðlesin ungu kyn-
slóðinni og fræðandi um víkinga-
tímabilið."
ÓÐFLUGA
„Ljóðin - og myndirnar - eru
spriklandi af kátínu og skringileg-
heitum. Málnotkun er snjöll og hlát-
urtaugarnar eru óspart kitlaðar. Ljóð-
in hafa átt greiðan aðgang að ungu
kynslóðinni og eru vel til þess fallin
að þjálfa brageyra hennar. En Ijóðin
kæta jafnt unga sem gamla.“
BENJAMÍN DÓFA
BENJAMIN
DUFA
Verðlaunasjóður íslenskra barna-
bóka efnir árlega til samkeppni um
bækur handa börnum og ungling-
um.
í vor hreppti Friðrík Erlingsson
íslensku barnabókverðlaunin fyrir
handrit sitt að sögunni Benjamín dúfu.
Á bókarkápu er þessi lýsing:
„Þegar hrekkjusvínið Helgi svarti fremur enn eitt illvirk-
ið ákveða fjórir vinir að taka höndum saman, stofna Reglu
rauða drekans og hefja baráttu gegn ranglæti heimsins.
Þeir Róland dreki, Andrés örn, Baldur hvíti og Benja-
mín dúfa hafa nóg fyrir stafni og um tíma er lífið eitt ó-
slitið ævintýri. En það koma brestir í vináttuna, ævintýr-
ið hættir skyndilega og kaldur raunveruleikinn ryðst af
hörku inn í líf þeirra...“
DVERGASTEINN
DvergaSteinn
Almenna bókafélagið efndi til bókmenntasamkeppni
1990. Þrjú handrit voru verðlaunuð, meðal þeirra
skemmtilegt ævintýri, Dvergasteinn eftir Aðalstein Ás-
berg Sigurðsson. Bókin kom út í fyrra og er skreytt mörg-
um myndum sem Erla Sigurðardóttir hefur gert.
Söguþræðinum er lýst þannig:
„Ugla, sem er níu ára, dvelur um tíma hjá ömmu sinni
í litlu þorpi úti á landi. í garðinum bak við húsið er stór
steinn, sem heitir Dvergasteinn, og er sagt að í honum
búi dvergar. Stúlkunni tekst á ævintýralegan hátt að kom-
ast í samband við dvergadreng í steininum og hann seg-
ir henni frá hörmulegum atburði sem hefur átt sér stað
meðal dverganna.
Ugla einsetur sér að leysa úr þessum sorglega vanda.
En tekst það?“
Við birtum hér Ijóð úr bókinni Óðfluga. Kafiar úr
tveimur verðlaunabókum eru á bls. 16 og 45.
12 Æ S K A N