Æskan - 01.06.1992, Blaðsíða 46
SKÓLAÞRÍÞRAUT FRÍ OG ÆSKUNNAR
ELDHRESS I URSLITAKEPPNI
Þau fara á Eyrarsundsleikana - auk Dagnýjar Skúladóttur:
Daði, Sólon, Aðalheiður og Drífa.
Stúlkur fæddar 1978
Drengir fæddir 1978.
Drengir fæddir 1979
Drengir og stúlkur víða af á landinu komu saman að Laugar-
vatni laugardaginn 30. maí. Þau höfðu unnið sér rétt til keppni í
úrslitum Skólaþríþrautar Frjálsíþróttasambands íslands og Æsk-
unnar með ágætum árangri í undankeppninni.
Um kvöldið var farið í ratleik og haldin kvöldvaka - auk þess
sem ýmsir brugðu sér í gufubað. Að morgni sunnudags reyndu
þátttakendur með sér í greinunum þrem, 60 m hlaupi, hástökki og
boltakasti.
Dagskrá og keppni stjórnaði starfsfólk og unglinganefnd FRÍ.
Stig voru gefin fyrir árangur í hverri grein. Úrslitum réði saman-
lagður stigafjöldi. Stigin voru reiknuð eftirtöflu sem tekur mið af aldri
- en hún er notuð á Norðurlöndum. í boltakastinu er reyndar mið-
að við stigatöflu fyrir spjótkast.
Ákveðið hafði verið að þau fjögur, tvær stúlkur og tveir drengir,
sem flest stig fengju hlytu að launum Svíþjóðarferð til þátttöku í
Eyrarsundsleikunum 9.-13. júlí. Þeir eru eitt fjölmennasta íþrótta-
mót sem haldið er á Norðurlöndum og þar keppa börn, unglingar
og fullorðnir.
Ferðafélagarnir verða þó fimm. Svo mjótt var á munum milli tví-
burasystra úr Breiðholtsskóla að ekki þótti rétt að gera upp á milli
þeirra. Þær verða raunar í Danmörku um það leyti sem leikarnir
fara fram og því er skammt að fara - yfir sundið!
Slúlkur fæddar 1978
Svo einkennilega vildi til að myndir af drengjum og stúlkum f. 1980 mistókust
öllum þeim sem tóku myndir - og til náðist.
Á EYRARSUNDSLEIKANA FARA:
Aðalheiður M. Steindórsd., Sólvaliaskóla -2694 stig.
Daði Sigurþórsson, Gr. Stykkishólmi - 2890 stig.
Dagný Skúladóttir, Breiðholtsskóla - 2548 stig.
Drífa Skúiadóttir, Breiðholtsskóla - 2558 stig.
Sólon M. Kristinsson, Sólvallaskóla - 2635 stig.
S O Æ S K A N