Æskan - 01.06.1992, Blaðsíða 55
ir að þú grætur stundum af
söknuði og þú lýsir líka vel
þessu ferli sem er yfirleitt
þannig að mestu sárindin eru
fyrst, síðan mildast allir hlutir.
Það er ómetanlegt fyrir þig
að geta talað í trúnaði við
mömmu þína og systur. Ég er
sammála þeim varðandi ákvörð-
un þína og stráksins sem þú
varst með. Það breytir því ekki
að þú þarft tíma til þess að jafna
þig og halda áfram að átta þig á
hlutunum.
Vonandi geta fleiri unglingar
komið auga á vissa fyrirmynd í
þvíhvernig þið hagið sambandi
ykkar. Það er oft erfitt að byrja
að vera með einhverjum, en enn
þá meiri vandi að hætta. Síðan
verður tíminn að leiða í Ijós
hvort leiðir liggja saman aftur
þegar þið bæði eruð orðin
reynslunni ríkari.
Skriftin er skýr og ber vott
um ákveðni.
VINIR SKOTNIR í SÖMU
STELPUM
Kæra Nanna Kolbrún!
Vandamál mitt er að vinur minn
rænir alltaf stelpunum sem ég er
á höttunum eftir (óviljandi). Fyrst
var ég hrifinn af stelpu sem ég upp-
götvaði að var hrifin af honum.
Seinna kynnist ég annarri sem á
heima langt í burtu. Sama dag
hættir hann að vera með þeirri fyrri
og fer að vera með þeirri sem ég er
hrifinn af. Bráðum get ég ekki varist
því að hata hann. Við höfum alltaf
verið bestu vinir. Hann veit af
þessu. Það er verst af öllu því að
hann segist ekkert geta gert. Ég
þekki stelpu sem er vinkona þeirr-
ar sem hann er með. Það er varla
að ég þori að reyna við hana. Ef
þetta gerist aftur þá verð ég ham-
stola. Ég er orðinn þunglyndur en
það er ekki af þessu.
Fórnarlambið.
Svar:
Það er alls ekki óalgengt að
vinir og vinkonur laðist að þeim
sömu. Vinir eru einmitt góðir
vinir afþví að áhugamál og jafn-
vel smekkur er sá sami. Samt
getur þetta verið snúið eins og
þú lýsir þessu, sérstaklega þeg-
ar um endurtekningar er að
ræða. Það getur verið að það sé
komin samkeppni þarna á milli
ykkar í kvennamálum. Það er
heldur ekki óalgengt á milli vina
og vinkvenna.
Það jákvæða í þessu hjá ykk-
ur er að þið talið saman um
þetta fyrir opnum tjöldum. Það
er alltaf fyrsta skrefið íátt að því
acI finna lausn á vandanum.
Sumir vinir gera með sér sam-
komulag um slíka hluti. Þá er oft
tekið mið af vissri siðfræði í
samskiptum. Vinur þinn virðist
vera fljótur að skipta um stelpur.
Er t.d. nauðsynlegt fyrir hann að
leita lags við allar þær stelpur
sem hann verður hrifinn af, ekki
síst ef hann veit að besti vinur
hans er skotinn í þeim líka?
Svona getið þið haldið áfram
að ræða þetta á einlægan hátt
og í trúnaði. Þannig vinnið þið
ykkur fram að lausn sem þið
getið báðir sætt ykkur við. Til-
finningar lúta ekki bara náttúru-
lögmálum. Það er hægt að
hjálpa til með skynsemi og við-
ræðum. Það gildir bæði um
kvennamálin hjá honum og
hatrið hjá þér.
Reyndu að hætta að líta á þig
sem fórnarlamb. Þú minnist á
þunglyndi þitt enda þótt þú skýr-
ir það ekki nánar. Rannsóknir á
þunglyndi hafa sýnt acI því fólki
sem hættir til að líta á sig sem
fórnarlömb, þ.e.a.s. finnst það
engu fá ráðið um eigin aðstæð-
ur eða tilfinningar, er hættara
við þunglyndi en þeim sem líta á
sig sem gerendur í eigin lífi.
Enda þótt margt sé ákveðið í líf-
inu þá er alltaf eitthvað sem við
getum gert sjálf, breytt eða bætt.
Reyndu að koma auga á mögu-
leikana og taka ábyrgð á að gera
eitthvað sjálfur líka.
EKKI TILBÚIN ENN ÞÁ
Kæra Nanna Kolbrún!
Ég á í miklum vanda og vil biðja
þig að hjálpa mér að leysa hann.
Þannig er að ég er 14 ára og var
hrifin af strák sem er jafngamall
mér. Við skulum kalla hann Sigga.
Við vorum á ferðalagi og gist-
um tvær nætur. Á leiðinni var ég
að tala við hann og varð hrifin af
honum og hann vissi það. Um
kvöldið var hann farinn að sýna
mér áhuga. Þegar hann bað mig
um að byrja að vera með sér þá
missti ég alveg áhugann á honum
og talaði ekki við hann meir.
Fyrir stuttu varð ég hrifinn af
strák sem er 15 ára. Við skulum
kalla hann Gunna. Honum var sagt
að ég væri hrifin af honum. Ég var
að deyja úr ást á honum. Daginn
eftir var mér sagt að hann væri hrif-
inn af mér og við fórum bæði hjá
okkur ef við litum hvort á annað.
Allir töluðu um að hann væri ást-
fanginn af mér og ég af honum og
spurðu af hverju við gerðum ekkert
í málinu. Einu sinni labbaði hann
að mér. Ég gekk í burtu. Vinur
hans sagði mér að hann hefði ætl-
að að biðja mig um að byrja að
vera með sér og hann væri hrifinn
af mér. Þá missti ég alveg áhug-
ann á honum og fór að hugsa um
enn annan.
kanna hvernig viðbrögð þeirra
eru en siðan missir þú áhugann.
Reyndu að fara rólegar í
þetta, gefa þér góðan tíma til að
velta fyrir þér eigin tilfinningum.
Verðir þú skotin í einhverjum
haltu þá þeim tilfinningum út af
fyrirþig í dálítinn tíma og reyndu
að fylgjast með þvíhvernig þetta
þróast. Þér liggur ekkert á og
það eru greinilega margir strák-
ar sem hafa áhuga á þér. Þeir
verða þarna áfram á morgun og
hinn daginn. Aðalatriðið er að
æða ekki áfram á undan sjálfum
sér. Aldurinn í árum er ekki að-
alatriðið, heldur tilfinningaþrosk-
inn. Sumir eru tilbúnir að fara að
æfa sig í samböndum við hitt
kynið 14 ára. Aðrir eru það ekki.
Ég held að þér liggi of mikið
á núna og þú sért of örvænting-
arfull um framtíð þína íþessum
málum. Reyndu að hægja á þér
og njóta betur athyglinnar sem
þú færð. Ef þú leyfir tilfinning-
um þínum að þróast getur þú
betur áttað þig á sjálfri þér en
ella.
Mér þykir vænt um hve
margir senda þættinum
bréf. Það er góð byrjun á
að kljást við vandamál að
letra þau á blað og leita
aðstoðar.
Ég get auðvitað ekki
svarað öllum. En margir
lýsa því sama og geta
fengið ráð við vanda sín-
um með því að lesa þátt-
inn.
Þeir sem leita til mín
verða að muna að skrifa
fullt nafn og heimilisfang
undir bréfi
Meö kærri kveðju,
Nanna Kolbrún.
Nanna Kolbrún, er eitthvað að
mér? Hvað get ég gert? Viltu
hjálpa mér? Ég er alveg ráðalaus
því að haldi ég þessu áfram eign-
ast ég aldrei kærasta, kannski ekki
alla ævi. Er ég of ung til að byrja að
vera með strák 14 ára? Ég hef
skrifað þrisvar áður en bréfin hafa
aldrei verið birt. Núna þarfnast ég
hjálpar þinnar nauðsynlega. Hvað
lestu úr skriftinni?
Ein sem hafnar strákum.
Svar:
Ég held að þú þurfir ekki að
hafa neinar áhyggjur af því að
eitthvað sé að þér. Þú ert bara
einfaldlega ekki tilbúin til
þess að eignast kærasta
enn þá. Þú ert greinilega
mjög hrifnæm og tekur vel
eftir sætum strákum, ert dá-
lítið spennt á meðan þú ert að
ÆSKU
Æ S K A N 5 9