Æskan - 01.06.1992, Side 25
að eltast við tímabundnar tískuból-
ur. Félagarnir fluttu m.a. fornfálega
og kraftlitla „rokkabillý“-ballöðu,
„Crazy Little Thing Called Love“ og
vélrænan diskó-slagara, „Another
One Bites The Dust“.
*Platan „Hot Space“ (1982) var
nánast hreinræktuð diskóplata. Á
næstu plötu, „The Works“, var aft-
ur á móti gert út á mið lauflétts
tölvupopps (lagið „Radio Ga-Ga“).
*Þegar Freddi lést af völdum
eyðni skömmu fyrir síðustu jól var
langt um liðið síðan Queen hafði
sent frá sér hljómplötu þar sem
hæfileikar kvartettsins voru nýttir
til hins ítrasta, hæfileikar á borð við
það vandasama verk að blanda
saman á óaðfinnanlegan hátt
þungu rokki og útsetningum í anda
sígildra verka.
Hér kemur listi yfir hljómplötur
spámaður í sínu föðurlandi, átti við
um sveitina. í Englandi þótti platan
þynnt stæling á metnaðarfullu
þungarokki Led Zeppelin. Enskir
plötukaupendur litu ekki við henni.
Aftur á móti vöktu vandaðar
raddútsetningar Queen-kvartettsins
hrifningu í Bandaríkjunum. Þar
skreið platan inn á vinsældalistann
„100 efstu“ (Top 100).
‘Næsta plata, „Queen ll“, kom
út ári síðar. Útgefandinn lagði ó-
hemjumikið fé í vel heppnaða aug-
lýsingaherferð, sannfærður um að
möguleikar hljómsveitarinnar væru
miklir fyrst fyrri platan náði inn á
bandaríska vinsældalistann.
'Þriðja platan, „Sheer Heart
Attack“, náði þriðja sætinu á Bret-
landseyjum og komst inn á „20
efstu“ í Bandaríkjunum.
'Næstu plötur hljómsveitarinn-
ar voru öruggar í efsta sæti breska
vinsældalistans. En það var ekki
fyrr en með níundu plötunni, „The
Game“, sem plata hennar náði
efsta sæti bandaríska vinsælda-
listans.
*Með plötunni „The Game“ gáfu
liðsmenn Queen nokkuð eftir hvað
varðaði listrænan metnað. Þeir fóru
Queen-sveitarinnar. Aftan við plöt-
urnar eru gæði þeirra sýnd með
stjörnugjöf. Besta einkunn er 5
stjörnur, sú næst besta er 4 stjörn-
ur o.s.frv.
1. Queen (mars 1973) *
2. Queen II (apríl 1974) *
3. Hjartaáfall (Sheer Heart
Attack -nóv. 1974)**
4. Kvöld í óperunni
(A Night at The Opera
- des.1975)****
5. Á kappreiðunum
(A Day at The Races
- des. 1976)***
6. Heimsfréttir
(News of The World
- okt. 1977)**
7. Jazz (nóv. 1978)*
8. Live Killers
(hljómleikaplata útg.
í júní 1979).*
9. Leikurinn (The Game
- júní 1980)*
10. Flash Gordon (des. 1980)*
11. Hot Space (maí 1982)**
12. Verkin (The Works
- mars 1983)*1/2
13. Eins konar töfrar
(A Kind of Magic
- maí 1985)*1/2
14. Lífstöfrar (Live Magic
- hljómleikaplata útg.
ídes. 1986)**
15. Kraftaverkið (The Miracle
- maí 1989)*
16. Queen At The Beeb
(15-17 ára gamlar
áður óútgefnar upptökur.
Útg. ídes. 1989)*
17. Inneuendo (feb.1991)*1/2
Til viðbótar þessu komu á
markað 1981 og 1991 tvær safn-
plötur með vinsælustu lögum
þeirra, „Greatest Hits“ og „Greatest
Hits ll“. 1985 kom út pakki með öll-
um plötum Queen og einhverju
áður óútgefnu efni. Þakkinn heitir
„The Complete Works"
... Friðrik Erlingsson hlaut
íslensku barnabókaverðlaunin í
ár. Friðrik var gítarleikari Sykur- gp
molanna fyrstu árin (1986-87). [
Hann spilaði m.a. í laginu „Afmæli“ gm
sem kom Sykurmolunum á al- W
þjóðakortið. Áður var Friðrik gít- O)
arleikari ponksveitarinnar Þurrks
Pillnikks. Að undanförnu hefur
Friðrik teiknað auglýsingar fyrir Mikjáll Jackson
Akureyringa ...
... í nýrri rokkmúsíkbók, „Direct-
ory Of World Music“ (eftir Peter
Gabriel, fyrrum söngvara Genes-
is, o.fl.) eru Sykurmolarnir kynntir
og hljómsveitinni hælt í bak og fyr-
ir. Einhverra hluta vegna er hljóm-
sveitin sögð vera frá Finnlandi...
... bandaríski Chereeko-indíán-
inn, leikkonan og söngkonan
Cher, varð 46 ára 20. maí er leið.
Samkvæmt útliti gæti hún verið 20
árum yngri. Líklega stafar unglegt
fas og útlit Cher af því að hún er
og hefur alltaf verið bindindis-
manneskja á áfengi og tóbak ...
... annar bandarískur poppari, >
Mikjáll Jackson, hefur einnig alla
tíð sniðgengið vímu-efni og tóbak.
Svo er að sjá að aldurinn færist
jafnhægt yfir hann og Cher...
Æ S K A N 2 5