Æskan - 01.06.1992, Qupperneq 26
NAFNIÐ SKIPTIR MALI I SKEMMTI IÐNAÐINUM
Nöfn!
skemmtara
I hafa ekki ver-
I ið flókið mál á
islandi. Stefán Hilmarsson og
Bjartmar Guðlaugsson gegna sín-
um upprunalegu nöfnum jafnt
utan sviðs sem innan.
Gælunöfn eins og Diddú (Sig-
rún Hjálmtýsdóttir) eða Bubbi (Ás-
björn Kristinsson Mortens) eru ó-
viðkomandi þátttöku þeirra á vett-
vangi skemmtiþjónustunnar.
Þessi gælunöfn fylgdu þeim frá
barnæsku.
Erlendis skiptir nafn skemmt-
arans miklu máli. Nafnið er mikil-
vægur liður í ímynd hans.
Þannig er því varið með nafn
bandaríska blökkusöngvarans
Prince. Raunverulegt nafn hans er
Roger Nelson. Það er í sjálfu sér á-
gætt nafn, þjált í munni og auð-
munað. En fyrir hörundsdökkan
söngvara, sem flytur dansmúsík af
sálar-ætt (soul), er óheppilegt að
bera nafn sem hljómar eins og
nafn á sveitasöngvara (kántrí). Fólk
gæti hæglega ruglað Roger Nel-
son saman við sveitasöngvarana
Willie Nelson og Ricky Nelson.
Nafnið Prins er aftur á móti nýtt
og ferskt. Það gefur til kynna að
hlutaðeigandi sé af konunglegum
ættum eða þá að prinsinn tengist
titli rokkkóngsins (Elvisar Presleys.
Reyndar titlaði Little Richard sig
„The King of Rock N’ Roll“ á tíma-
bili) eða sálar-drottningarinnar
(Tínu Turner. Raunverulegt
nafn Tínu er Anna Mae Bullock).
Hér á eftir fer skrá yfir raunveru-
leg nöfn kunnra skemmtikrafta
(Innan sviga eru sviðsnöfn þeirra):
Fredrick Bulsara (Freddie Merc-
ury, nýlátinn söngvari Queen)
Gordon Summer (söngvarinn,
,,Sting“)
Paul Hewson (Bono Vox,
söngvari írsku rokksveitarinnar U2.
Bono Vox þýðir raddsterkur)
Chaim Witz (Gene Simmons,
bassaleikari og söngvari Kiss)
Derek Dick (Fish, fyrrum söngv-
ari Marillion. Fish þýðir fiskur)
William Broad (enski rokk-
söngvarinn Billy Idol. Idol
merkir átrúnaðargoð).
Robert
Zimmerman
(bandaríski
söngva-
smiður-
inn og
far-
and-
söngvarinn Bob Dylan.
Dylan er sótti til fornafns
rithöfundarins Dylans Thomas)
Reginald Dwight (enski píanó-
leikarinn og söngvarinn Elton John.
Elton er sótt til virts ensks djass-
saxófónleikara, Deans Eltons)
Georgios Kæyriacou Pana-
yiotou (enski poppsöngvarinn Ge-
orge Michael)
Frank Carlton Serfino Ferrano
(Nikki Sixx bassaleikari bandarísku
þungarokkssveitarinnar Mötley
Crue)
Charlton Ridenhour (Chuck D,
söngvari bandarísku rabb-sveitar-
innar Public Enemy)
John Mellors (Joe Strummer,
fyrrverandi söngvari og takt-gítar-
leikari ensku pönksveitarinnar
Clash og síðar gftarleikari og
söngvari írsku þjóðlagarokksveit-
arinnar Pogues. Orðið „strummer”
lýsir þeirri athöfn að spila hrana-
legan takt-gítarieik)
Charles Michael Kitridge
Thompson IV (Black Francis,
söngvari bandarísku gítar-
nýrokksveitarinnar Pixies)
2 6 Æ S K A N