Valsblaðið - 24.12.1966, Blaðsíða 12

Valsblaðið - 24.12.1966, Blaðsíða 12
10 VALUR Fimmti flokkur, C-lið f. v.: Halldór Einarsson, þjálfari, Hörður Sverrisson, Guð- finnur Ólafsson, Sigurður Sigurðsson, Ellert Róbertsson, Asgeir Jakobsson (fyrir- liði), Þorfinnur Ólafsson, Magnús Jónsson og Láturs Loftsson, þjálfari. Fremri röð f.v.: Kristján Þórarinsson, Jón Guðbrandsson, Þröstur Lýðsson, Örn Bragason, Hákon Arnþórsson, Birgir Jónsson og Örn Gunnarsson. mætti segja og átti Valur að leika fyrri leikinn hér heima. Valur taldi verra að leika fyrri leikinn úti, af fjárhagsástæðum fyrst og fremst. Urðu nokkur bréfaskipti og erfið- leikar að koma öllu saman. Albert Guðmundsson bauðst til að aðstoða og kom það sér vel. Belgar voru hinir beztu við að eiga og loks var ákveðið að Standard léki hér 29. ág. og Valur 31. ág. í Belgíu. Enn komu hindranir í veginn og varð Standard að leika hér 22. ágúst, sem einnig olli erfiðleikum, en allt fór vel að lokum. Gestirnir komu svo 21. ágúst og leikurinn hófst á tilsettum tíma eða 22. ág. kl. 7,30. Urslitin komu flestum á óvart, því jafntefli varð 1:1. Nú var hafizt handa um undir- búning Belgíufarar. Þátttakendur óskuðu að fá að bæta dögum við ferðina, til ferðalaga úti. Farið var héðan 30. ág. og flogið til Luxem- borgar, og komið til Liege að kveldi. Daginn eftir var borgin og leikvangur Liege skoðað og mátti sjá, að það voru engir fá- tæklingar þar til húsa. Leikið var í flóðljósi og lauk leiknum með sigri heimamanna 8:1. Valur lék betur en mörkin benda til. Næsta morgun var lagt af stað í fyrirhugað ferðalag, en heim var komið 11. sept. eftir skemmtilega og vel heppnaða ferð. I landsleiJcnum og útvalsleikjum léku eftirtaldir menn: A-landslið: Árni Njálsson, Sig- urður Dagsson, Hermann Gunn- arsson og Reynir Jónsson. Urvalslið landsliðsnefndar: Þor- steinn Friðþjófsson, Reynir Jóns- son, Ingvar Elísson, Hermann Gunnarsson, Árni Njálsson og Bergsveinn Alfonsson. Landslið, 23 ára og yngri: Her- mann Gunnarsson, Bergsveinn Al- fonsson. Reykjavíkurúrval: Þorsteinn Friðjónsson, Halldór Einarsson, Reynir Jónsson, Ingvar Elísson, Hermann Gunnarsson, Árni Njáls- son, Hans Guðmundsson. Jónsbikarinn (stigabikarinn). Nú var þessi fagri gripur af- hentur öðru sinni, til varðveizlu næsta tímabil hjá þeim ílokk fé- lagsins, sem flest stig hafði hlotið á keppnistímabili sumarsins. 4. flokkur B hlaut flest stigin, og varð því handhafi bikarsins að þessu sinni. Afhending fór fram á fjölsótt- um fundi og afhenti form. deild- arinnar fyrirliða 4. flokks bikar- inn og þakkaði drengjunum frá- bæran dugnað í leik og starfi, og þá þakkaði form. Róbert Jónssyni og Stefáni Sandholt fyrir hinn góða árangur og vel unnin störf í þágu félagsins og flokksins. Nú vill svo til að Róbert var þjálfari 5. flokks, sem hlaut bikarinn árið áður, og þar við bætist, að nú að loknu keppnistímabili kemur í ljós, að 4. flokkur er aftur sigurvegari í stigakeppninni og verður hand- hafi bikarsins á nýjan leik. Að lokum þakkar stjórnin öll- um félagsmönnum margþætta hjálp og velvilja henni til handa, og skorar á alla Valsmenn að standa þétt saman um okkar mál- efni. Árangurinn hefur verið góð- ur, en það er hægt að bæta um margt og lagfæra, en ef allir eru einhuga um velfarnað félagsins, þá lítum við björtum augum á framtíðina. Björn Carlsson (formaður). Elías Hergeirsson, hinn trausti og ábyggilegi Valsmað- ur, sem tekið hefir forustu í knatt- spymudeildinm. Efni, sem býður næsta blaðs I þessu afmælis- og jólablaði hefir svo til viljað, að blaðið hefir stækk- að meira í meðförunum en við gerð- um upphaflega ráð fyrir, svo að við höfum því miður orðið að geyma til næsta blaðs ýmsar skrár saman- dregnar yfir 5 árin úr knattspym- unni og handknattleiknum, og enn- fremur skrá yfir stjórnir og nefndir á tímabilinu. Þá bíður næsta blaðs göngulag og ljóð á nótum, tileinkað Val, eftir Snorra Halldórsson. Biðj- um við alla þá, sem gaman liafa af þessum fróðleik, velvirðingar á þessu, en lofum bót og betmn í næsta blaði, ef við kollsiglum okkur þá ekki núna, og töpum traustinu. Rit.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.