Valsblaðið - 24.12.1966, Side 13
VALUR
11
Aðalfundur hand-
knattleiksdeitdarinnar
Aðalfundur Handknattleiksdeildar
Vals var haldinn sunnudaginn 11.
desember í Félagsheimilinu. Páll
Guðnason var kjörinn fundarstjóri
og fundarritari var kosinn Ágúst
ögmundsson.
Garðar Jóhannsson las upp fund-
argerð síðasta aðalfundar.
Skýrslu stjóraar deildarinnar
flutti formaður hennar, Þórarinn
Eyþórsson, og var hún hin ítarleg-
asta og bar vott um gott starf á ár-
inu, og vísast til hennar hér á öðr-
um stað i blaðinu. Þá las Karl Harry
Sigurðsson reiltninga deildarinnar.
Nokkrar umræður urðu um skýrslu
og reikninga, og starfsemin rædd
vítt og breitt, og ríkti mikill áhugi
á fundinum og samhugur.
Þegar að stjórnarkjöri kom var
Þórarinn Eyþórsson tilnefndur sem
formaður fyrir næsta ár, en hann
Hermann Gnnnarsson í landliöspeysu
handknattleiksins, en peysa landsliðsins
í knattspymu klæðir hann eklci síður.
baðst eindregið undan endurkosn-
ingu og var það tekið til greina. Var
þá tilnefndur Garðar Jóhannsson,
sem var varaformaður síðasta ár, og
var hann einróma kjörinn formaður.
Með honum í stjórninni voru kosin:
Karl Harry Sigurðsson, Guðbjörg
Árnadóttir, Ágúst Ögmundsson og
Finnbogi Kristjánsson. 1 varastjórn
voru kosnir: Sigurður Gunnarsson,
Guðmundur Ingimundarson og Guð-
mundur Ásmundsson.
Garðar Jóhannsson kvað sér hljóðs
og þakkaði það traust sem sér hefði
verið sýnt með þvi að kjósa sig sem
formann.
Hann kvaðst treysta á samstarfs-
vilja fólksins og kvaðst mundi gera
sitt bezta á komandi ári.
Þá flutti Hermann Gunnarsson
stutt og skeleggt ávarp til Þórarins
Ey})órssonar, og þakkaði honum frá-
bært starf fyrir handknattleikinn i
Val, og það væri handknattleiks-
mönnum félagsins mikið gleðiefni,
að I>órarinn ætlaði að þjálfa flokk-
ana í komandi framtíð. Var gerður
góður rómur að máli Hermanns.
Bjöm Carlsson fyrrverandi for-
maður Knattspyrnudeildar Vals
þakkaði það samstarf sem verið
hefði með handknattleiksdeildinni og
knattspymudeildinni á liðnum ár-
um, og vonaði að það héldi áfram.
Þórarinn þakkaði þau hlýju orð
sem fallið hefðu í sinn garð.
Að lokum ávarpaði fundarstjóri
og formaður Vals Þórarin og þakk-
aði honum það mikla starf sem
hann hefði innt af höndum á um-
liðnum árum.
Milli 40 og 50 menn sóttu fund-
inn. Á-\-F.
VEIZTU ?
að það er talið mjög sennilegt að Róm-
verjar hafi, um það leyti sem Krist-
ur fæddist, leikið nokkurskonar
knattspyrnu, og að leikur þessi hafi
verið vinsæll meðal hermanna, að því
er haldið fram að Ágústus keisari,
sem þá ríkti hafi bannað leikinn
vegna þess að hann væri alltof vægur
fyrir liennenn, og skapaði ekki þá
þjálfun sem þeim væri nauðsynleg
undir erfiði hernaðarins.
GARÐAR JÓHANNSSON:
„Treysti á fólkið
og samstöðuna við það“
Valsblaðið átti örstutt samtal við
hinn unga nýkjörna formann hand-
knattleiksdeildarinnar, Garðar Jó-
hannsson, eftir aðalfund deildarinn-
ar, og spurði hvemig honum litist á
þetta nýja starf i Val?
Mér lízt vel á það. Ég hefi að visu
ekki verið í handknattleiknum nema
3—4 ár, en mér hefir fallið vel við
félagslífið í Val og hefi verið þar
síðan ég fluttist hingað frá Vest-
mannaeyjum.
Ég trevsti á fólkið, og vona að það
takist samstaða við keppenduma og
okkar i milli sem höfum tekið að
okkur að stjóma handknattleiksmál-
mn félagsins, og þá ekki sízt við
þjálfarana.
Þar er það fyrst og fremst Þórar-
inn, sem allt hefir staðið og fallið
með á umliðnum árum, og má segja
að hann hafi verið potturinn og
pannan í handknattleiknum í Val,
og útkoman ber manninum fagurt
vitni.
Annars hefir maður vist ekki
mikla hugmynd um hvað maður er
að ráðast í og taka að sér. Þar verð-
ur það reynslan sem sker úr hvort
inaður er hæfur í þetta eða ekki.
Það er eins og ég sagði áðan, að
allt veltuf á samstarfi og samstöðu
allra þeirra sem að þessu vinna. Ég
treysti á samstarf stjómarinnar og
að hún verði þeim vanda vaxin, að
leysa þau vandamál sem þessu fylgja
og ævinlega koma upp. F. H.