Valsblaðið - 24.12.1966, Side 16

Valsblaðið - 24.12.1966, Side 16
14 VALUR VALKYRJUR VALS MYNDSKÝRING Það mun einsdæmi í íslenzkum handknattleik, að kvennaflokkur færi félagi sínu þrjá bikara til eignar á sama árinu. Þetta gerðu handknatt- leiksstúlkur Vals í ár. íslandsbikarinn inni unninn 3 ár í röð, Islandsbikarinn úti unninn 3 ár í röð og Reykjavíkurbikarinn unninn einnig í 3 ár í röð. Hér er ekki um neina heppnissigra að ræða, hér eru yfirburðir eins og eftirfarandi tölur sýna: Þær hafa leikið 37 leiki, unnið 36 og tapað einum. Þær hafa skorað 426 mörk gegn 207. Hér hafa óvenjulega duglegar stúlkur verið að verki, stúlkur, sem sannarlega eru stolt okkar Valsmanna. Það er vafasamt, að þetta met verði slegið á næstunni og að önnur félög komi til með að sýna neitt svipað á komandi tímum. Við Valsmenn þökkum þessum þróttmiklu stúlkum, sem um leið hafa gefið þeim yngri fagurt fordæmi. Við óskum þeim til hamingju með þennan glæsilega árangur. Á þessari sigurstundu megum við ekki gleyma, að stúlkurnar hafa ekki staðið einar á þessari sigurgöngu, þær hafa haft Þórarin þétt við hlið sér og hann hefur leitt þær ákveðið, öruggt og miskunnsamt eftir þessari vandrötuðu leið. Iionum ber líka þakkir og heiður. F. H. Fremri röð f.v. Elín Eyvindsd., Anna B. Jó- hannesd., Ólöf Stefánsd., Guð- björg Árnad., Katrín Her- mannsd., Margrét Krístjánsd., Björg Guðmundsd. Aftari röð f.v. Ása Krístjánsd., Ragnheiður Þorsteinsd., Elínborg Krístj- ánsd., Hrafnhildur Ingólfsd., Vigdís Pálsd., Þórarínn Ey- þórsson fijálfari, Sigrún Guð- mundsd., Kristín Jónsd., Ragn- lieiður Lárusd., Sigríður Sig- urðard., Erla Magnúsd., Á myndina vantar Sigrúnu Ingólfsd., Báru Guðjónsd., Ingibjörgu Kristjánsd., Hrefnu Pétursd. og Sigrúnu Geirsd,

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.